143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[21:30]
Horfa

Sigrún Magnúsdóttir (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta andsvar. Ég er ekkert hissa þó að hann sé ekki alveg sáttur við röksemdir mínar. Þess vegna greinir okkur eflaust á í stjórnmálum, við erum ekki alltaf alveg sammála.

Þetta frumvarp gengur út á að koma til móts við einstaklinga en ekki lögaðila.