leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegur forseti. Ég tel að svigrúmið sem geti skapast í þeim samningum sé að lágmarki 300 milljarðar. Þær tölur hafi út af fyrir sig verið réttar. En það er rangt að leggja saman þessi tvö frumvörp vegna þess að í séreignarsparnaðinum er aðeins lítill hluti heildarfjárhæðarinnar einhvers konar framlag frá ríkissjóði, annað er bara sparnaður fólksins sjálfs. Það er því ekki stuðningur við fólk nema skattalegi hlutinn af því.
Þingmaðurinn spurði áðan hvort við ættum ekki bara að vera fegin því að umfangið væri svipað og aðrir flokkar lögðu áherslu á í aðdraganda síðustu kosninga. Önnur ástæða fyrir því að vera því ekki fegin er að þessum fjármunum er ráðstafað með allt öðrum hætti en aðrir flokkar lögðu til. Þeim er ekki miðað á þá sem sannarlega urðu fyrir áfalli, t.d. á kynslóðina sem keypti á bóluárunum rétt fyrir hrun, ekki á þá sem mest þurfa á að halda. Þegar við ráðstöfum ekki nema þessum litlu fjármunum, 70–80 milljörðum,(Forseti hringir.) til skuldugra heimila er ákaflega mikilvægt að þeim sé ráðstafað til þeirra sem á þurfa að halda. Það er alls ekki gert með þessu frumvarpi og þess vegna er það vont.