143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[22:20]
Horfa

Edward H. Huijbens (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni skýr og góð svör. Það er einmitt gott að fá þessa skýringu. Ég skil fullkomlega þetta með örvæntinguna, að menn hafi brugðist svona við vegna hennar frekar en endilega út frá loforðum Framsóknar. Á því hef ég skilning.

Ég hef pínulitlar áhyggjur af því að menn tali mjög fjálglega um 20%-leiðina sem talað var um 2009. Tilfellið var, eins og um var rætt á þeim tíma, að þá mundi það — og hún var alls ekki gallalaus og alls ekki sisvona möguleg. Hún hefði til að mynda sett Íbúðalánasjóð lóðbeint á hausinn, þar sem vel rúmlega helmingur fasteignalána ef ekki meira er enn í dag, og hefði komið illa við lífeyrissjóðina. Þetta voru því miklir óvissutímar og mjög óljóst hvernig þetta hefði verið gert, 20%-fullyrðingin var þar eilítið glannaleg þótt eflaust hefði hún getað gengið, eftir á að hyggja, ég veit það ekki. Ég get ekki fullyrt um það hér en hún var eilítið glannaleg og um það var rætt.