143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[22:39]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég verð að árétta það sem hér hefur verið nefnt, það er náttúrlega meira en furðulegt að hæstv. forsætisráðherra skuli ekki láta sjá sig í þessari umræðu. Það er ekki eins og þessi umræða hafi tekið stuttan tíma, hún hefur varað hér í tvo heila daga og tvö kvöld. Forsætisráðherrann sem með eld í augum talaði fyrir skuldaleiðréttingunni í aðdraganda kosninga og á eftirminnilegum skrautfundi í Hörpu og aðeins rislægri fundi í Iðnó talaði um það sem framan af var kallað heimsmet og upprisa en sést svo ekki þegar málið er rætt í þinginu.

Þessi fjarvera hæstv. forsætisráðherra hefur nefnilega merkingu í því pólitíska samhengi sem við erum í hér. Hér erum við með óvenjulega sterkan þingmeirihluta bak við ríkisstjórn, 38 þingmenn bak við kraftmikla ríkisstjórn sem sest að völdum eftir kosningar í miklu stuði, hefur misst fylgi og tiltrú hraðar en við höfum nokkurn tímann áður séð og þegar kemur að stærsta kosningamáli þessarar ríkisstjórnar er það með eftirgangsmunum sem ráðherrann sem mælir fyrir málinu, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson, lætur sjá sig í mýflugumynd endrum og sinnum undir umræðunni. Hvaða aðrir hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa talað hér? Tveir aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa talað í vaskri 19 manna sveit, hv. þm. Pétur H. Blöndal sem lýsir sig andsnúinn málinu og hv. þm. Vilhjálmur Bjarnason sem er sama sinnis. Þessir tveir sjálfstæðismenn hafa tjáð sig um málið fyrir utan hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem situr uppi með það því að hann mælti fyrir því. Arkitektinn, hugsuðurinn, hinn framsýni ungi forsætisráðherra er hins vegar ekki á staðnum, hann bara sést ekki. Þetta hefur allt saman pólitíska þýðingu.

Staðan sem umræðan er í hér er í samspili við þá tiltrú sem hrynur í huga þjóðarinnar á hverjum einasta degi. Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur, fylgi stjórnarflokkanna hrynur og fylgi við einstaka ráðherra er á undanhaldi. Það sem meira er, aðeins 27% þjóðarinnar hafa yfir höfuð trú á heimsmetinu sem flokkarnir voru kosnir út á, fyrst og fremst Framsóknarflokkurinn, hafa trú á málinu sem mælt hefur verið fyrir. 27% þjóðarinnar eru eftir á dekki til að gefa heimsmetinu séns.

Þetta er staðan. Af hverju er staðan orðin þessi? Af hverju er staðan orðin svona vandræðaleg og undiraldan svona þung? Af hverju er stóra loforðið orðið svona dældað þegar rétt er búið að mæla fyrir málinu? Af hverju skyldi það vera?

Það er vegna þess að pólitík er í samhengi. Það eru örfáar vikur síðan hæstv. utanríkisráðherra mælti fyrir því að afturkalla aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Það var sögulega illa tímasett tillaga, illa formuð og með vondri greinargerð sem ráðherra þurfti að taka til baka. Hún rammaði inn kosningasvik Sjálfstæðisflokksins vegna þess að sjálfstæðisráðherrarnir höfðu hver á fætur öðrum lofað allt öðru. Þessi tillaga er í því samhengi og líka því að í umræðunni um fjárlagafrumvarpið eru óteljandi þau skipti þegar hæstv. fjármálaráðherra steig í pontu — og notaði hvaða orð? Hvað sagði hæstv. fjármálaráðherra? Þessir peningar eru ekki til. Og um hvað var þá verið að ræða? Þá var verið að ræða um desemberuppbót, háskólastigið, Landspítalann og menningarsamninga. Og þá var verið að tala um heilsugæslu.

Þá var verið að tala um samfélagið, samneysluna okkar. Þá kom hér bláeygur ungur fjármálaráðherra og sagði ábyrgur, sligaður af ábyrgðarkennd og ást á ríkissjóði: Þessir peningar eru ekki til. Og við sem leyfðum okkur að halda öðru fram vorum óábyrg gagnvart viðkvæmri stöðu ríkissjóðs.

Hvað gerist svo? Það sem hétu útgjöld, óábyrg ráðstöfun opinbers fjár í aðdraganda fjárlagafrumvarps og afgreiðslu þess, er núna efnahagsaðgerð sem er fjármögnuð með hinum sama ríkissjóði. Þá er hægt að ráðstafa fé þar sem þess er sannarlega ekki þörf og þá koma þingmenn Framsóknarflokksins í ræðustólinn — og hvað segja þeir? Við lofuðum leiðréttingu fyrir heimilin.

Ég held að þar sé alveg mælt af hjarta, að menn hafi hugsað með sér: Já, við ætluðum að leiðrétta vanda heimilanna í landinu. Sú staða sem hér er upp komin, fjarvera forsætisráðherra og sérkennileg viðvera Sjálfstæðisflokksins, leiðir hugann að þeirri staðreynd að þetta er ekki svona einfalt.

Eru heimilin sem þarna voru til skoðunar ekki heimili öryrkja? Eiga öryrkjar ekki heimili? Eiga leigjendur ekki heimili. Eiga námsmenn ekki heimili? Eiga þeir sem eiga lánsveð eða byggja sína íbúð á lánsveðum að hluta ekki heimili?

Svo er hin hliðin á því sem var til umræðu í aðdraganda afgreiðslu fjárlaga. Eru skólarnir ekki fyrir heimilin? Er heilbrigðiskerfið ekki fyrir heimilin? Er sterkt vegakerfi ekki fyrir heimilin, sálfræðiþjónusta, sérkennsla, rafmagn, vatn? Er það ekki fyrir heimilin í landinu? Jú, það er nefnilega fyrir heimilin í landinu. Og það eru öll heimilin í landinu. Það eru þessi heimili sem njóta góðs af samfélaginu, af samneyslunni. Þessi heimili njóta góðs af því að horft sé til heildarinnar en ekki til þess að ráðstafa fé þar sem þess er ekki þörf.

Staðan er sannarlega pólitískt mjög flókin fyrir ríkisstjórnarflokkana eins og hér hefur verið bent á en vegna þess að hér er undir hugtak sem hefur verið þrástef og forsenda þessarar umræðu sem er forsendubresturinn er sérkennilegt að horfa á hvernig þessu hugtaki hefur reitt af, fyrst í aðdraganda kosninganna þegar það var mjög ríkt í umræðunni, síðan í flottu kynningunni í Hörpu þar sem forsendubresturinn var ítrekað nefndur og svo núna eftir að umsóknir verða komnar í hús. Þegar þátttakan liggur fyrir á fjármálaráðherra að ákveða með reglugerð einhvers konar leiðréttingarvísitölu á sínu borði. Þá er allt í einu forsendubresturinn ekki í tölu eða tiltekinni viðmiðun heldur miðast við það hve há heildartalan verður. Í raun er forsendubresturinn ekki lengur forsenda leiðréttingarinnar heldur er forsendan orðin talan sem er til skiptanna. Þetta er til umhugsunar.

Í öðru lagi er til umhugsunar hvað rannsóknir á hinum raunverulega forsendubresti sýna. Hér hefur ítrekað verið bent á þá staðreynd að þessari leiðréttingu er beint að fólki sem beinlínis hagnaðist á efnahagshruninu. Það getur ekki undir neinum kringumstæðum gengið upp að tala í sama orði um forsendubrest og þá sem keyptu eignir 1994 eða 1998. Það gengur ekki upp. Það er alveg sama hvaða nálgun maður notar í því að tala um forsendubrest. Ef við skoðum rannsóknir á efnahagslífinu í aðdraganda hrunsins er sannarlega hægt að tala um forsendubrest hjá þeim sem tóku lán eftir 2004, sérstaklega þeim sem keyptu sína fyrstu íbúð eftir það. Það fólk er verst sett vegna verðbólgunnar 2007–2008.

Svo getur maður tekið upp skáldlegri sveiflur og talað um forsendubrest þeirra sem búa á Þingeyri, Djúpavogi og Húsavík þessa dagana og hvort hin velmeinandi ríkisstjórn hugsi sér þegar milljarðarnir fara að rúlla inn frá hrægammasjóðunum að þetta fólk megi búast við einhvers konar leiðréttingu á lífskjörum sínum, draumum og tilveru. Hvað ná þessi gæði langt hjá hæstv. ríkisstjórnarflokkum? Ég sakna þess í umræðunni að það er lítið rætt um það fordæmi sem með þessu er gefið, það umfang sem hér er undir og hvaða skilaboð við erum að gefa inn í framtíðina.

Virðulegur forseti. Þessi umræða er að mestu leyti á enda runnin og hefur að mjög mörgu leyti verið gagnleg og á köflum afar málefnaleg. Hér hafa verið dregnar fram staðreyndir sem varða fyrst og fremst muninn á loforðunum stóru og síðan efndunum en umræðan hefur ekki síður dregið fram þann pólitíska veruleika sem hér er til grundvallar. Það er greinilegt að ríkisstjórnarflokkarnir eiga eftir að ráða ráðum sínum í fleiri málum en Evrópusambandsmálinu. Það væri glúrið að fara að hittast einhvers staðar út af því, en ekki síður út af þessu máli vegna þess að staðan þarna er greinilega mjög flókin. Ég hef sjálf væntingar til þess að það væri vit í að reyna að færa þetta mál til betri vegar með því að beina kröftunum þangað sem þeirra er frekar þörf, a.m.k. gæta að því að þarna séu einhver mörk á ferð. Ég held að það skipti mestu máli í þessari umræðu allri saman að menn átti sig á því að yfirlýsingar um heimsmet og upprisu eru dæmdar til að brotlenda. Enginn stendur undir slíkum gífuryrðum.

Það sem er þó verst í þessu máli er að hér er opinberu fé, skattfé, peningum okkar allra og fyrst og fremst peningum þeirra sem lítið hafa og fá ekkert út úr þessum aðgerðum, beint til þeirra einstaklinga sem á fyrri tímum hefðu keypt gull og eldað með saffrani og ólífuolíu.