143. löggjafarþing — 92. fundur,  8. apr. 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[23:54]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. fjármálaráðherra segir að leiðréttingin geti í mesta lagi numið 102 milljörðum frá ríkissjóði, 80 í þessari aðgerð og 22 milljörðum í skattafslætti. Ég nefndi rétt tæplega 90 milljarða, ég ætla ekki að gera það að aðalatriði hvort þetta verða 90 eða 100 milljarðar. Ég vek bara athygli á því að 102 milljarðar eru u.þ.b. 5,3% af 1.920 milljarða kr. skuldum heimila um síðastliðin áramót. Það skiptir því engu máli hvernig við hlutfallsreiknum þessa leiðréttingu, hún liggur alltaf einhvers staðar á bilinu 5–6%, hvort sem það er reiknað út frá meðalláni, heildarskuldum heimilanna eða einhverju öðru.

Ég vildi síðan spyrja hæstv. fjármálaráðherra í lokin hvort hann geti staðfest að tillögurnar sem kynntar voru í Hörpu hafi við útreikninga í fjármálaráðuneytinu reynst verða dýrari en 80 milljarðar. Til að koma í veg fyrir að kostnaðurinn færi yfir 100 milljarða með fullri þátttöku í Hörputillögunum hafi verið nauðsynlegt að hverfa frá fyrirætlunum um reiknivél á netinu í desember og breyta tillögunum og kynna þær þannig breyttar í Iðnó.