almannatryggingar og staða öryrkja.
Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka þessa umræðu. Ég get sagt svipað og málshefjandi, það er erfitt að vita hvar maður á að byrja og hvernig maður á að nota tæpar tvær mínútur til að tala um þetta gríðarlega stóra mál.
Almennt talað vonar maður og gengur út frá því að samstaða sé um að með batnandi efnahagsástandi á nýjan leik hljóti að vera samstaða um að bæta eftir föngum kjör aldraðra og öryrkja, þá auðvitað einkum lakast setta hluta hópsins. Reyndar voru gefin um það stór loforð frá núverandi stjórnarflokkum að taka tafarlaust til baka allar þær skerðingar sem menn töldu óhjákvæmilegt að grípa til á árinu 2009. Ég minni þó á að þær skerðingar voru allar útfærðar þannig að þær komu niður á betur settum hlutum hópsins og skertu í engu kjör þeirra sem eingöngu reiddu sig á greiðslur frá almannatryggingum.
Fyrrverandi ríkisstjórn var með frumvarp um endurskoðun á almannatryggingalögum þar sem gert var ráð fyrir verulegri framför í þessum málaflokkum, að vísu í áföngum. Það var ekki gengið lengra í loforðum eða yfirboðum þar. Síðan höfum við lítið af málinu frétt annað en þetta sem gerðist í vor og hitt að einar tvær nefndir séu að störfum.
Það er mjög brýnt að þessu nefndarstarfi fari að ljúka þannig að hægt sé að horfa til framtíðar og einhverra ára og þá vonandi í hvaða áföngum menn ætla að bæta verulega stöðuna.
Það er til dæmis alveg ljóst að núverandi ástand er ekki heppilegt hvað það varðar að einhverjar tekjur úr lífeyrissjóðum til öryrkja eða einhverjar launatekjur með skila mönnum allt of lítilli viðbót við það sem þeir hafa og það er ekki nægilegur hvati að því leyti til í kerfinu.
Ég tel þó allra brýnast að leiða til lykta hvernig samspili greiðslna úr örorkubóta- og almannatryggingakerfinu og örorkugreiðslna lífeyrissjóða verður fyrir komið á næstu árum. Það samkomulag (Forseti hringir.) sem gert var í árslok 2010 er nú útrunnið og það er afar mikilvægt að niðurstaða komist í það mál sem fyrst. Ég ætla rétt að vona að það renni ekki bara sitt skeið á enda og að fyrra fyrirkomulag taki við.