almannatryggingar og staða öryrkja.
Forseti. Ég þakka fyrir mjög góðar umræður. Það hljóta allir að vera sammála um að það sé í hæsta máta óeðlilegt að fólk þurfi til dæmis að svelta sig til að geta leyst út lyfin sín. Mér hefur fundist það koma mjög skýrt fram hjá þeim sem ég hef rætt við og þeim sem hafa látið sig þessi mál varða að nauðsynlegt er að hér verði fylgt grunnframfærsluviðmiðum og að engum sé gert að lifa undir þeim viðmiðum. Fólk á að geta búið við áhyggjulaust ævikvöld og lifað með reisn óháð því hvort það eru öryrkjar eða ellilífeyrisþegar. Þessir hópar geta ekki farið í verkfall til að hætta að vera gamlir eða veikir.
Stöndum vörð um réttindi þeirra og gerum eitthvað strax. Hættum að láta það viðgangast að fólk sé á vergangi því það að eiga öruggt skjól eru sjálfsögð mannréttindi. Allt of margir mæla hér göturnar, eiga í engin hús að venda og þurfa að flytja úr einu hverfi í annað sem er mikið rask fyrir börn öryrkja. Því miður eru allt of margir sem búa í ólöglegu húsnæði í iðnaðarhverfum. Þetta hangir allt saman.
Það eiga allir sem þurfa á að halda stjórnarskrárvarinn rétt til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar eða sambærilegra atvika. Við vitum öll að öryrkjar hafa orðið fyrir mestu hlutfallslegu skerðingunni og þeirra forsendubrestur hefur ekki verið leiðréttur. Það kom mjög skýrt í ljós og ég hvet þingmenn til að kíkja inn á vef Öryrkjabandalagsins þar sem fram kemur, og við ættum öll að vita þetta, að í 69. gr. almannatryggingalaga segi að bætur skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Við þá ákvörðun skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
Eftir bankahrun tóku stjórnvöld ítrekað lagagreinina úr sambandi með fjárlögum þrátt fyrir hörð mótmæli Öryrkjabandalagsins og fleiri hagsmunasamtaka. Því hafa bætur til öryrkja og eldri borgara ekki hækkað sem skyldi.
Gerum eitthvað í því strax.