dýralæknaþjónusta í dreifðum byggðum.
Virðulegi forseti. Það er kannski ekki miklu við þetta að bæta öðru en því að ég er sammála hv. þingmanni að þessi sjónarmið þarf að skoða sérstaklega og ég vænti þess að það verði þær athugasemdir sem munu koma frá dýraeigendum, hvort sem er í stétt bænda eða annarra. Auðvitað þarf einnig að horfa til þess innan hvaða fjárlagaramma við störfum og þar við þarf að bæta að ekki er sjálfgefið að hægt sé að fá fólk með þessa fagmenntun til að setjast að á hvaða stað sem er öðruvísi en að starfsumhverfið sé nægilega tryggt og menn hafi eitthvað við að starfa. Þess vegna geta fjarlægðir orðið býsna langar og við þekkjum það af staðreyndum undanfarinna ára að í þessum málaflokki, eins og svo mörgum öðrum, er tilhneigingin sú að það sogast margt á suðvesturhornið og það eru sífellt færri sem virðast hafa löngun til þess að starfa úti á landsbyggðinni. Þess vegna þarf það að vera jákvætt og hafa ákveðið aðdráttarafl til þess að draga fólk að, bæði spennandi starfsumhverfi og spennandi störf og lykillinn að því, grunnlykillinn að því er þessi grunnlöggjöf, þetta markmið um að hið opinbera komi að því að tryggja velferð dýra í landinu með því að tryggja að dýralæknar séu til staðar. Það er auðvitað forsendan fyrir því að það sé hægt.