143. löggjafarþing — 93. fundur,  9. apr. 2014.

innflutningur landbúnaðarafurða.

539. mál
[16:24]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Því miður er það þannig, eins og við þekkjum, að þegar kemur að viðskiptum með landbúnaðarvörur í hinum vestræna heimi eru höft meginreglan. Sem betur fer er það ekki í allri matvælaframleiðslu enda væri þá illa fyrir komið okkur Íslendingum sem erum fyrst og fremst matvælaútflytjendur og höfum alltaf verið það. Fyrst og fremst er það fiskurinn sem við höfum flutt út en ekki er heldur langt síðan við fluttum líka út kjöt og reyndar er það þannig að matvælaframleiðslan á Íslandi er í hæsta gæðaflokki. Það er tiltölulega stutt síðan að við settum skorður gagnvart innflutningi á matvöru. Í upphafi síðustu aldar var t.d. mjög fjölbreytt úrval af erlendum matvörum sem við takmörkum núna.

Þetta snýst ekki bara um valfrelsi neytenda, þetta snýr líka að íslenskum bændum og það er alveg ljóst að það eru mikil sóknarfæri fyrir íslenska bændur að sækja á aðra markaði vegna þeirrar hágæðavöru sem við framleiðum. Þróunin hefur verið sú að lagt var upp með að vernda hefðbundnar íslenskar landbúnaðarvörur og íslenskan landbúnað, sem er nátengdur menningu okkar, þá aðallega sauðfjárbúskap og nautgriparækt, yfir í það að þeir sem framleiða hvíta kjötið fá nú margfalt hærra framleiðendaverð en bæði sauðfjárbændur og nautgripabændur. Reyndar er það þannig að verð til nautgripabænda er á pari við lægsta verð hjá OECD en sauðfjárbændur íslenskir fá um 40% af því verði.

Ég tel að þarna séu miklir sóknarmöguleikar fyrir íslenskan landbúnað. Ég fer ekkert ofan af því að íslenskir neytendur eiga að njóta valfrelsis þegar kemur að þessum vörum eins og öðrum. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra þriggja spurninga:

1. Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknum skyrkvóta á erlendum mörkuðum og bjóða kvóta á hvítu kjöti í staðinn? Það er einfaldlega vegna þess að það er mikil eftirspurn og mikil sóknarfæri fyrir skyrið og frekar augljóst að við gætum boðið það á móti í því haftaumhverfi sem ríkja í viðskiptum í Evrópu með þessar vörur.

2. Er ráðgert að einfalda fyrirkomulag á innflutningi landbúnaðarafurða? Flókið kerfi er vont kerfi og það er óþolandi að menn þurfi að standa í endalausum deilum um kerfi sem þeir skilja illa.

3. Verður aðgengi íslenskra neytenda að erlendum landbúnaðarafurðum aukið frá því sem nú er?