hvalveiðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Við þurfum að vera tilbúin að tala um hvalveiðar, kosti þeirra og galla. Þótt ég hafi ekki verið sérstaklega andvíg hvalveiðum gegnum tíðina líður mér eiginlega eins og sú barátta sé töpuð vegna þess að það er alveg ótrúleg andstaða við hvalveiðar víða. Þótt manni finnist það vera tvískinnungur að fólk sem borðar nautakjöt og jafnvel klæðist pels skuli vera mjög á móti hvalveiðum þá er það bara þannig. Síðast í fyrra átti ég samtal við hámenntaðan Breta, vin minn, og reyndi að taka þessa umræðu við hann og spurði hvort þetta væri ekki tvískinnungur. Hann var algjörlega á því að þetta væri ómannúðleg aðferð við að drepa dýr. Mér finnst við ekki alltaf geta sagt að við eigum bara að standa í lappirnar. Mér finnst það viðhorf kannski einum og íslenskt. Við þurfum stundum að vega og meta hagsmunina: Er þetta þess virði? Ég er hrædd um að þetta (Forseti hringir.) sé umræða sem við vinnum ekki.