143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[17:13]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2013–2016.

Líkt og þingheimur þekkir skal innanríkisráðherra leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar á fjögurra ára fresti um stefnumótandi samgönguáætlun þar sem mörkuð er stefna og markmið fyrir allar greinar samgangna fyrir komandi ár. Gildandi samgönguáætlun, sem við vinnum nú eftir, er frá árunum 2011–2022.

Samhliða, líkt og þingheimur þekkir einnig, skal leggja fram nákvæmari verkefnaáætlun til fjögurra ára sem endurskoðast á tveggja ára fresti. Hér er sú samgönguáætlun frá 2013–2016 kynnt og felur í sér endurskoðaða verkefnaáætlun fyrir seinni hluta fyrsta tímabils og fyrri hluta annars tímabils umræddrar tólf ára samgönguáætlunar og er lögð fram lögum samkvæmt til þingsályktunar.

Ég vil taka fram, virðulegur forseti, hér í upphafi, af því að við höfum mjög oft verið að ræða samgöngumálin hér á þingi, að ég vildi óska og ég vona að okkur auðnist það, þinginu, að sameinast um það á næstu árum, í kjölfar ákveðinna erfiðra tíma sem verið hafa hér á undanförnum árum, að tryggja að næstu ár verði aðeins brattari hvað varðar samgönguáform og hvað varðar uppbyggingu. Við vitum öll að þetta eru hvað mikilvægustu innviðir í hverju samfélagi.

Sú áætlun sem hér er kynnt er endurskoðuð og uppfærð frá fyrri verkefnaáætlunum sem ég nefndi áðan og sú áætlun var samþykkt á Alþingi sumarið 2012. Hún var fyrst kynnt á Alþingi í ársbyrjun 2013 en komst ekki á dagskrá þingsins og er því hér lögð fram að nýju.

Þrátt fyrir að samgönguáætlun taki lögum samkvæmt til áranna 2013–2016 er fyrsta ár áætlunarinnar liðið og því hafa verkefni þess árs verið unnin í samræmi við áður samþykkta samgönguáætlun að teknu tilliti til fjárlaga og fjáraukalaga þess árs. Gerð verður grein fyrir og gerð er grein fyrir verkefnum í skýrslu ráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar fyrir árið 2013. Ég ítreka það, virðulegur forseti, að góðar samgöngur eru ein af grundvallarstoðum samfélagsins. Þær tryggja öflugt atvinnulíf og þær tryggja framfarir, þær tryggja kraftmikið þjóðfélag og tryggja búsetugæði sem við viljum halda uppi í landinu. Hér er því leitast við að líta á samgöngukerfið sem eina heild, hvort sem er á landi, í lofti eða á sjó og lögbundin markmið áætlunarinnar eru um að efla greiðar, öruggar og hagkvæmar samgöngur, og þessi orð koma ítrekað fram, sem stuðla að jákvæðri byggðaþróun og bættum búsetugæðum. Þetta er allt haft í heiðri hér og ég geri ráð fyrir að þingheimur þekki.

Það er einnig í greinargerð í þingsályktuninni sem nær til tólf ára að finna ítarlega umfjöllun um umrædda stefnumótun í samgöngumálum, skipulag samgöngumála, forsendur, spár um þróun lykilstærða, grunnnet samgöngukerfisins og fjármálaáætlunar og allt þetta þekkir þingheimur vel og ég veit að þingmenn kynna sér og eru vel meðvitaðir um.

Mig langar hins vegar, virðulegur forseti, aðeins að drepa á helstu þáttunum í þessari áætlun. Mikil áhersla er lögð á það í þessari áætlun, líkt og verið hefur á undanförnum árum, að efla öryggi í öllum samgöngum. Við horfum fyrst og fremst og að mestu leyti þar til umferðarinnar, bæði með aukinni fræðslu, notkun á samfélagsmiðlum til að ná til bæði íslenskra og erlendra ökumanna í samstarfi við einkaaðila og ekki síður með skipulögðu viðhaldi sem ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að halda betur á og halda betur um, sem gerir vegina í landinu öruggari.

Þá er einnig ítrekað komið inn á umhverfismálin og stutt við vistvæna samgöngumáta. Það þekkja allir sem hér eru að nokkur verkefni er tengjast landshlutasamtökunum og almenningssamgöngum miða að þessu, miða að því að bæta lýðheilsu auk þess sem áfram er stutt við framkvæmdir og verkefni sem stuðla að orkusparnaði og notkun umhverfisvænni orkugjafa fyrir samgöngutæki. Meðal markmiða áætlunarinnar er að ná fram hagkvæmni í uppbyggingu og rekstri samgöngukerfisins, að meta samfélagslegan kostnað og ávinning fyrir notendur og áfram njóta verkefni á landsvæðum þeim sem í dag búa við lakastar samgöngur ákveðins forgangs. Það á við ýmis svæði í hinum dreifðari byggðum þar sem brýn þörf er á framkvæmdum.

Í þeirri samgönguáætlun sem við hér ræðum er gert ráð fyrir að um 85 milljarðar kr. verði til ráðstöfunar til samgöngumála. Vissulega eru verkefnin mörg sem óskandi væri að hefja á því tímabili sem áætlunin tekur til en tillagan byggir fyrst og fremst á raunsæi og fyrirhyggju í ráðstöfun á opinberu fjármagni. Ljóst er að á árinu 2014, og á því hef ég ekki legið hér í umræðu um samgöngumál, er dregið úr fjármagni til framkvæmda en síðan er gert ráð fyrir því að framlög til samgangna muni aukast um 3% fyrir hvert ár um sig, þ.e. 2015–2016, í samræmi við hagvaxtarspá og til að koma til móts við þann sameiginlega vilja þingheims sem er að halda í samgönguáætlunina.

Hér er þó, í þessari samgönguáætlun sem við ræðum, einnig lagt til að leita nýrra leiða við fjármögnun til að koma af stað arðbærum verkefnum sem skila þjóðhagslegum ábata í auknu öryggi og greiðari samgöngum. Í því samhengi er sérstaklega horft til aðkomu einkaaðila að uppbyggingu samgöngumannvirkja, en eins og ég hef áður fjallað um, bæði í ræðu og riti, tel ég að með aukinni aðkomu einkaaðila sé hægt að flýta fyrir ákveðnum framkvæmdum og dreifa ábyrgðinni á uppbyggingu og rekstri samgöngumannvirkja. Um þetta eru auðvitað mörg dæmi frá nágrannalöndum okkar sem ég tel að við eigum að líta til.

Verkefnaáætlunin sem hér er til umræðu skiptist í fjóra kafla. Í fyrstu þremur köflunum er að finna yfirlit yfir helstu verkefni samgöngustofnana okkar, gerð grein fyrir áætluðum tekjum og gjöldum þeirra ára sem tillagan tekur til. Í síðasta kaflanum er síðan gerð grein fyrir stöðu rannsókna- og þróunarverkefna sem tilgreind voru í samgönguáætlun 2011–2022, en niðurstöður þeirra eiga að nýtast við endurskoðun samgönguáætlunar til tólf ára sem fer fram á þessu ári.

Sem fyrr segir er áætlunin um mjög margt lík þeirri áætlun sem lögð var fram á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga. Nokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á innbyrðis skiptingu milli verkefna í kjölfar þess að Samgöngustofa varð til á síðasta ári og skiptingu verkefna á milli Samgöngustofu og Vegagerðarinnar. Helstu breytingarnar eru þær að gert er ráð fyrir framlagi til jarðganga undir Húsavíkurhöfða og framkvæmda við Húsavíkurhöfn auk þess sem framlag til viðhalds vega og þjónustu, einkum vetrarþjónustu, er hækkað á árunum 2015–2016. Þetta þekkja þingmenn hér, við höfum oft rætt þær erfiðu aðstæður sem hafa skapast vegna veðurs yfir vetrartímann á undanförnum árum, sem hafa gert það að verkum að vaxandi þörf er víða á landinu fyrir vetrarþjónustu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að huga að og má ætla að muni þurfa að huga frekar að í framtíðinni.

Markmið fyrir vegakerfið eru meðal annars þau að byggja upp grunnnet stofnvega með fullu burðarþoli og bundnu slitlagi, breikka umferðarmikla vegi og aðskilja akstursstefnur, útrýma sem mest við getum einbreiðum brúm á fjölförnum vegum og grafa jarðgöng í samræmi við jarðgangaáætlun. Þá verður að tryggja fullnægjandi viðhald eins og ég hef nefnt svo oft áður enda er það algjör forsenda þess að við glötum ekki þeim fjárfestingum sem við höfum lagt í þetta kerfi okkar.

Útgjöld í veg- og hafnaáætlun skiptast þannig í aðalatriðum í sex hluta, fara í rekstur, í almenningssamgöngur, en kostnaður vegna þeirra hefur farið vaxandi á undanförnum árum en er auðvitað talinn draga úr kostnaði við aðra þætti í samgöngum. Svo er það þjónustan og í fjórða lagi viðhald, stofnkostnaður og hafnarframkvæmdir. Og framkvæmdahlutinn er háður því fjármagni sem eftir stendur þegar tryggt hefur verið fjármagn til reksturs, viðhalds og þjónustu vegakerfisins. Þetta þekkja þingmenn hér vel og vita að þjónusta Vegagerðarinnar miðar að því að standa undir viðunandi rekstri vegakerfisins. Ég er þeirrar skoðunar að þar hafi í grundvallaratriðum tekist afar vel og kerfi Vegagerðarinnar sé að þessu leyti til mikillar fyrirmyndar.

Loks má nefna mikilvægi rannsókna, sem eru auðvitað stór þáttur í þessu mikla innviðakerfi okkar, en um 450 millj. kr. renna til rannsókna á umræddu tímabili, sem margar hverjar munu vonandi skila góðum arði í nýjungum og nýtingu auk þess sem niðurstöður renna oft og tíðum betri stoðum undir stefnumótun og alla ákvarðanatöku. Ég vil einnig nefna það í þessu sambandi að ég hvet þingmenn, sem ekki hafa kynnt sér eða farið til Vegagerðarinnar að skoða upplýsingakerfi hennar, til að gera það enda njótum við sem notum vegi landsins þeirra kosta dagsdaglega.

Helstu vegaframkvæmdir á tímabilinu 2014–2016 eru breikkun vegar um Hellisheiði, gerð brúar á Múlakvísl, endurgerð Reykjavegar, gerð Arnarnesvegar, gerð Álftanesvegar, gerð Vestfjarðavegar í Mjóafirði og Kjálkafirði, gerð Strandavegar um Bjarnafjarðarás, gerð Dettifossvegar, gerð brúar á Jökulsá á Fjöllum, gerð vegar um Berufjarðarbotn, gerð Norðfjarðarganga útboð framkvæmda við Dýrafjarðargöng og lagning bundins slitlags á um 100 km af tengivegum. Hér hef ég einungis nefnt það helsta.

Auðvitað er það svo, og það þekkir þingheimur og getur borið það saman í áætluninni, en einnig fengið frekari gögn ef þess er óskað, að þrátt fyrir að þetta séu auðvitað stærstu framkvæmdirnar á umræddu tímabili þá er fjármagn til þessara þátta ekki nákvæmlega eins og í fyrri áætlun heldur hefur dreifingunni á milli ára sums staðar verið flýtt og annars staðar hefur verið aðeins ýtt á undan sér og ég geri ráð fyrir því að þingheimur geti auðveldlega glöggvað sig á því í áætluninni sem hér liggur frammi.

Þá er einnig rétt að nefna að markmið hafnahluta áætlunarinnar er að tryggja sem fyrr innviði fyrir sjávarútveg og samgöngur. Stærsti útgjaldaliðurinn er, eins og verið hefur í nokkuð langan tíma, Landeyjahöfn. Þar er alls gert ráð fyrir að 1,3 milljörðum verði varið til framkvæmda við höfnina á umræddu tímabili, meðal annars til rannsókna og framkvæmda sem eiga að draga úr sandburði til frambúðar, árlegrar dýpkunar og uppgræðslu við hafnarsvæðið. Einnig er rúmlega 800 milljónum varið í hafnarframkvæmdir á Húsavík, svo að eitthvað sé nefnt.

Hvað varðar flugmálahlutann hef ég einnig komið inn á það hér í ræðu minni og get ítrekað það að þar hefur á undanförnum árum orðið talsverður niðurskurður og talsverð breyting á fjármagni að um sama leyti og hægt er að hrósa Vegagerðinni fyrir að hafa unnið vel úr sínum þáttum er eðlilegt að gera það sama gagnvart Samgöngustofu og Isavia sem hefur þurft að vinna úr talsvert minna fjármagni en áður hefur verið. Ég held og vona það innilega að sú félagshagfræðilega úttekt sem við nýlega kynntum og hefur verið til umræðu hér á þinginu og sýnir að þegar því er haldið fram í almennri umræðu að innanlandsflugkerfið okkar sé kostnaðarsamt fyrir íslenskt samfélag þá er það ekki rétt. Við njótum góðs af því og hið opinbera fær meira út úr því kerfi en látið er inn í kerfið. Mér hefur stundum þótt sem umræðan sé á öðrum stað og vil þess vegna halda þessu til haga.

Hvað flugmálahlutann varðar fjallar sá hluti samgönguáætlunar um áherslur, verkefni, rekstur og framkvæmdir, sem eru á forræði Samgöngustofu og Isavia, og sem kunnugt er rekur Isavia flugvellina og flugleiðsögukerfin sem fjárveitingar til stofnunarinnar samkvæmt þjónustusamningi sem nemur tæpum 7 milljörðum kr. á tímabilinu. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt að það eru ýmsir þættir sem tengjast viðhaldi flugvalla og dýrum framkvæmdum er tengjast yfirborði flugbrauta, athafnasvæði flugvéla o.s.frv. þar sem þurft hefur að draga saman og víða er svo komið að að þessu verðum við að huga í framtíðinni betur en gert hefur verið, og ég vona að þingheimur sé mér sammála um það.

Alls er gert ráð fyrir rúmlega 2 milljarða kr. framlagi úr ríkissjóði í rekstur og verkefni Samgöngustofu á tímabilinu. Þá er umferðaröryggisáætlun á þessu ári fjármögnuð af vegáætlun en framkvæmd hennar líkt og annarra öryggisþátta er í höndum Samgöngustofu. Verkefni áætlunarinnar skiptast í eftirfarandi áherslur og lúta að vegfarendum, vegakerfinu, ökutækjum og loks, eins og í öðrum þáttum, vinnu við rannsóknir, stefnumótun og löggjöf. Hér eru mjög margir og mikilvægir þættir sem við gætum tekið langa umræðu um og ég vil meina að Samgöngustofa hafi verið að fara margar merkilegar, óhefðbundnar leiðir í því að vekja þá sem nýta sér vegi landsins til umhugsunar um þá ábyrgð sem því fylgir. Ég veit að þingheimur hefur tekið eftir því en ég vona innilega að okkur takist að ná betur utan um það verkefni. Það hefur því miður verið svo að slysin í umferðinni eru of mörg, hafa verið of mörg og okkur hefur ekki tekist jafn vel á undanförnum árum og nokkrum árum fyrr að tryggja að helst séu engin slys en að við séum eins meðvituð um þau og við mögulega getum verið og nýtum fjármagn og áherslur til þess að vekja almenning til umhugsunar um það.

Síðan vil ég nefna aðeins hér þau verkefni sem snúa að öðrum samgöngumátum og þá er ég auðvitað helst að hugsa um almenningssamgöngurnar. Við höfum verið í þróunarverkefnum með samtökum sveitarfélaga um allt land, með landshlutasamtökunum. Þau verkefni hafa gengið vel, gengið vel að því leyti að allar athuganir sýna að almenn ánægja er með þessa þætti hvað varðar íbúa. Íbúar um landið eru ánægðir með það aukna val sem skapast hefur í almenningssamgöngum og þann fókus sem verið hefur á þeim þáttum.

Það breytir hins vegar engu um það að landshlutasamtökin hafa komið því skýrt áleiðis til mín sem innanríkisráðherra og annarra stofnana ráðuneytisins að þau telji að hugsa þurfi það upp á nýtt hvernig því fjármagni er skipt. Þess vegna er vinna í gangi innan ráðuneytisins í góðu samstarfi við landshlutasamtökin og Samband íslenskra sveitarfélaga og Vegagerðina þar sem við erum að skoða þá þætti, hvort þarf að vinna það betur.

Virðulegi forseti. Ég vil hér í lokin hvetja allan þingheim til að skoða þessa áætlun vel og taka um hana öfluga umræðu. Markmið okkar er fyrst og síðast að tryggja öruggar og skilvirkar samgöngur til hagsbóta fyrir almenning í landinu. Það er von mín að þær tillögur og þau verkefni sem hér eru lögð fram nái fram að ganga og að íbúar landsins njóti góðs af þeirri vinnu sem unnin er hér á Alþingi við þessa áætlun.