143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[17:28]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og tek undir með henni um mikilvægi umferðaröryggismálanna og vil lýsa því sjónarmiði að við eigum þar mikið verk óunnið í fækkun slysa.

Ég vil inna ráðherrann eftir sjónarmiðum hennar varðandi þær einkaframkvæmdir sem hún nefnir, þ.e. að fá einkaaðila að einstökum verkefnum í samgönguframkvæmdum og hvort hún sjái fyrir sér í því sambandi að gjöld verði tekin fyrir það að nýta samgöngumannvirki sem þannig eru reist. Og hvort hún telji það vera eftirsóknarvert til að fá meira fjármagn til framkvæmda í vegagerðinni og þar á meðal hvort hún telji að til greina komi að fjármagna uppbyggingu á höfuðleiðunum til og frá höfuðborginni, Hellisheiðinni, Keflavík eða inn á Vesturlandið með veggjöldum af einhverju tagi.

Síðan sömuleiðis, vegna þess að hún lýsir áhuga á því að fá einkaaðila að framkvæmdum í samgöngumálum, hvort það sé eitt verkefni öðru fremur sem hún keppi að að koma í einkaframkvæmd á kjörtímabilinu sem samgönguráðherra.