143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[17:29]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég tel að það skipti miklu máli að við förum að hefja vinnu sem tengist því að fá aðra en hið opinbera, einkaaðila eða aðra þá sem eru reiðubúnir að fjárfesta í samgöngumannvirkjum, að því verkefni með okkur. Og já, ég sé fyrir mér ákveðið verkefni sem ég tel sérstaklega geta blasað við og hef fengið samantekt af hálfu vegamálastjóra sem ég hef þegar kynnt í ríkisstjórn og sagt frá opinberlega, ég tel að Sundabraut sé það verkefni sem við eigum að huga að. Ég hef þegar rætt það við borgaryfirvöld og finn og skynja mikinn áhuga hjá þeim að koma að því verkefni. Ég tel því að ekkert sé að vanbúnaði að hefja þá rýni. Enda hef ég þegar skipað starfshóp til að halda utan um það verkefni að leita leiða til að innleiða auknar framkvæmdir í samgöngumannvirkjum með aðkomu slíkra aðila. Sú vinna er að hefjast og forustu fyrir þeim hópi veitir Helga Valfells og ég vonast til þess að við fáum tillögur frá þeim hópi fyrr en síðar.

Spurningin var líka um hvort ég sjái fyrir mér að gjöld verði tekin af þeim sem nýta sér þau samgöngumannvirki. Já, ég sé fyrir mér að tekin verði sanngjörn gjöld af slíkum mannvirkjum. Við höfum verið að líta mjög til reynslunnar í kringum okkur, t.d. í Noregi. Það breytir þó engu um það að ég er líka þeirrar skoðunar, og ætla ekki að nefna einstakar leiðir í því sambandi, að í þessu samhengi verðum við að líta til þess að almenningur verður samt að hafa val um aðra kosti. Þess vegna er Sundabrautin svo kjörin í slíka framkvæmd vegna þess að almenningur gæti keyrt aðra leið og kosið að nýta sér ekki samgöngubótina sem hann þyrfti þá að greiða hóflegt og sanngjarnt gjald fyrir. Við höfum því séð það þannig fyrir okkur að almenningur hafi alltaf val um aðra leið og að fyrir það væri greitt sanngjarnt gjald.

Ég vil taka það fram vegna þess að hv. þingmaður vekur athygli á málinu (Forseti hringir.) að það er mjög athyglisvert og ánægjulegt fyrir mig sem samgönguráðherra að upplifa það hversu mikinn áhuga ég finn á verkefninu og hversu margar sveitarstjórnir víða um land hafa að fyrra bragði komið að máli við ráðuneytið og óskað eftir því að umbætur í þeirra (Forseti hringir.) samfélagi væru skoðaðar með hliðsjón af þessu.