143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[17:47]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það er gleðilegt að við skulum vera farin að ræða samgönguáætlunina. Ég var sérstaklega ánægð með það í ræðu hæstv. ráðherra að hún skyldi draga fram rauðu þræðina í áætluninni sem eru umferðaröryggi, vistvænar samgöngur og lýðheilsa. Þetta skiptir allt mjög miklu máli og þarf auðvitað að birtast og raungerast með peningum og framkvæmdum.

Ég ætla að nýta minn stutta tíma til að fara í gegnum það sem sveitarfélögin á Suðurlandi hafa lagt mesta áherslu á. Landshlutasamtökin hafa auðvitað fjallað um samgönguáætlunina til lengri tíma og leggja áherslu á nokkur mikilvæg atriði. Alveg eins og kom fram í máli hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar áðan leggja sveitarfélögin á Suðurlandi mikla áherslu á endurbætur á tengivegum og kalla eftir því að sett verði í gang tímasett framkvæmdaáætlun með formlegu samráði þannig að farið verði í verkefnið, sem skiptir miklu máli, þótt ekki væri nema vegna þess að umferðarþunginn hefur aukist mikið um Suðurlandið og ferðamönnum, eins og kunnugt er, fjölgað mjög mikið. Umferðarþunginn er mikill og það skiptir máli í umferðaröryggisskyni að laga þessa vegi og skoða hvort bundið slitlag sé ekki betri lausn í einhverjum tilfellum en malarvegir eins og er til dæmis um fjölfarna hálendisvegi. Það þarf að fara yfir þau mál og hvað sé hagstætt að gera.

Ég vil nefna í því sambandi, af því að þarna leggja sveitarfélögin áherslu á ferðamannastrauminn og að það þurfi að fara í ýmsar framkvæmdir til þess að mæta álagi og efla umferðaröryggið, veginn til Grindavíkur, veginn að Bláa lóninu. Þangað sækja meira en 500 þúsund ferðamenn, þeir koma þar við og fara eftir þessum vegi en umferðaröryggið þar er ekki nægilega gott. Vegurinn er ekki nægilega góður og það er mikið áhyggjuefni, einkum vegna þess að þarna er vatnsverndarsvæði, þarna eru vatnsbólin okkar og vegurinn liggur um vatnsverndarsvæði. Það er því sérstaklega mikilvægt að fara í lagfæringu á veginum.

Fækkun einbreiðra brúa er náttúrlega stef sem við flytjum hér á hverju ári, þingmenn Suðurkjördæmis. Í Vestur- og Austur-Skaftafellssýslu eru 20 einbreiðar brýr og það þarf ekki að tala um hversu mikilvægt það er fyrir umferðaröryggið að fara í átak og fækka þeim og styrkja þannig þessa meginflutningaleið. Sveitarfélögin á Suðurlandi leggja mikla áherslu á að samgönguáætlun verði breytt í þá veru að þeim aðgerðum og framkvæmdum verði flýtt.

Síðan kom hæstv. ráðherra inn á stöðuna varðandi Vestmannaeyjaferjuna og það tengist auðvitað framkvæmdunum við Landeyjahöfn. Þar er ákveðin áætlun í gangi sem ég fagna og vona að muni ganga eftir og bera árangur, því að höfnin og ferjan hanga saman og skipta mjög máli fyrir Vestmannaeyinga en ekki síður fyrir landsmenn alla og ferðamenn sem kjósa að heimsækja Vestmannaeyjar. Þetta hefur áhrif á íbúana í Vestmannaeyjum en einnig hinum megin við eyjarnar, uppi á landi. Þess vegna er það hagsmunamál allra, ekki einungis Vestmannaeyinga, að þetta gangi hratt. Hæstv. ráðherra gat ekki komið með tímasetta áætlun varðandi það en ég legg áherslu á að því verði hraðað og einnig á að þetta er ekki aðeins hagsmunamál fyrir Vestmannaeyinga heldur fyrir alla landsmenn.

Við hæstv. ráðherra höfum áður rætt saman um almenningssamgöngur og sveitarfélögin eru ákaflega ánægð með þá þróun sem hefur verið í almennum samgöngum og fagna því öllu saman, kalla eftir skýrari ákvæði laga um einkarétt sveitarfélaganna til almenningssamgangnanna. Það er samt einn skuggi á þessu ferli öllu saman og það er almenna samgöngukerfið á Suðurnesjum. Það er óásættanlegt að það eigi að taka leiðina sem ber sig út úr almenningssamgöngukerfinu. Það gerir ekkert annað að verkum en það að þjónusta við almenning á Suðurnesjum verður slæm og úr takti við þann rauða þráð sem hæstv. ráðherra kynnti áðan með samgönguáætlun þar sem er talað um vistvænar samgöngur og lýðheilsu og samgönguöryggi.

Auðvitað eru aðrir landshlutar uggandi því að leiðin Reykjavík–Leifsstöð er ekki eina arðbæra leiðin í almenningssamgöngukerfinu víða um land. Þær eru margar leiðirnar sem bera sig og samtök landshlutanna hafa af því verulegar áhyggjur að líka eigi að kippa þeim út úr kerfi þeirra, þar með er kerfið allt saman hrunið. Það hrynur á Suðurnesjum með því að taka út þessa arðbæru leið og ef það á að fara sömu leið um allt landið er kerfið hrunið og ávinningurinn kemur þá aldrei til íbúanna. Ég vona því svo sannarlega að því verði breytt og hæstv. ráðherra snúi til baka hvað það varðar.

Annað mikilvægt byggðamál eru fjarskiptamálin sem eru stoð undir góða búsetu. Þar sem fjarskiptamálin eru í ólagi vill ungt fólk ekki setjast að. Það er bara þannig og því þarf að leggja ríka áherslu á þau.

Virðulegur forseti. Ég vil í lokin nefna tvöföldunina sem á eftir að koma frá Fitjum upp á flugstöð. Það skiptir miklu máli. Við Suðurnesjamenn fögnum því að leggja eigi aukna áherslu á hjólastíga, enda hentar svæðið vel til hjólreiða og ef hjólastígar tengdu saman bæina mundu vistvænar samgöngur að sjálfsögðu aukast. (Gripið fram í.)

Líka er kallað eftir tengingu Suðurstrandarvegar við Grindavíkurbæ, að klára þann veg. Sá vegur var mjög lengi í byggingu og að sjálfsögðu fögnum við því að það skuli hafa verið mögulegt að klára hann, meira að segja á krepputímum, en það er afar slæmt að tengingin skuli ekki vera komin við bæinn inn í Grindavík.

Að lokum þetta: Hæstv. ráðherra talaði áðan í munnlegri fyrirspurn um flugvöllinn. Hún lagði á það áherslu að flugvöllurinn væri í sveitarfélaginu Reykjavík. Um það hefur verið rætt fram og til baka og meiri hluti landsmanna vill að flugvöllurinn sé í Reykjavík og kallar eftir því, en rétt eins og hæstv. ráðherra segir er Reykjavík með skipulagsvaldið og erfitt að sjá hvernig hægt er að fara inn í það nema með sérstökum lögum um flugvöllinn í Reykjavík. Það er auðvitað þannig með flugvelli nálægt höfuðborgum að víða tekur 30–40 mínútur, klukkutíma að keyra þangað. Við Suðurnesjamenn erum með flugbrautir, við erum með húsnæði og getum tekið við innanlandsfluginu á morgun, þannig að ég vona sannarlega að ef hugmyndin er að flytja flugvöllinn, (Gripið fram í.)nú vitum við ekki hvernig það endar, en ef svo skyldi vera finnst mér afar slæmt ef Keflavík, ódýrasti og besti staðurinn, sé útilokaður. Ég vona vissulega að það verði ekki niðurstaðan.