143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[18:19]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en vildi spyrja hann um áherslur hans um forgangsröðun. Þingmaðurinn talar hér fyrir því að auka framlög til tengivega, í snjómokstur, í gerð undirganga fyrir búfénað og ýmis önnur verkefni. Maður hlýtur þá að spyrja: Leggur þingmaðurinn þá til að dregið verði úr öðrum nýframkvæmdum í vegakerfinu en tengivegum á móti því að auka í þetta?

Sömuleiðis um samhengið í þessu, vegna þess að þingmaðurinn sagði í ræðu sinni að full ástæða væri til að auka vegaféð, en er það ekki þannig að fyrir þessu þingi liggur frumvarp hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um að lækka gjöld á eldsneyti og með því framlag í vegasjóðinn? Og hefur ekki hv. þingmaður sem stjórnarþingmaður samþykkt í sínum þingflokki framlagningu þess máls og beinlínis lækkun á þeim tekjum sem áttu að renna í þennan málaflokk á þessu ári? Hvernig hangir þessi forgangsröðun þá saman hjá hv. þingmanni, að leggja í raun til aukningu á rekstrarkostnaðinum í vegakerfinu, sem þá hlýtur að draga úr því fé sem eftir er til nýframkvæmda, tala að eigi að síður fyrir nýframkvæmdum en standa um leið að máli sem dregur úr því vegafé sem til ráðstöfunar er?