143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[18:24]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að okkur greini ekki alvarlega á í þessum efnum. En fyrst varðandi mótsagnirnar í mínu máli, að styrkja þurfi tekjur og auka framlög til vegamála og ég hafi síðan samþykkt að það mætti lækka gjöld. Ég var að rekja það að við þurfum að endurskoða tekjustofna Vegagerðarinnar. Ég tel ekkert sjálfgefið að við göngum út frá því um aldur og ævi að metanbílar, rafbílar eða tvinnbílar, eða hvað við köllum þessa bíla, slíti vegunum minna en hefðbundnir bensín- og dísilbílar. Við eigum að passa okkur að falla ekki í einhverjar svona gildrur í umræðunni.

Varðandi það hvort okkur greini á um einkaframkvæmdir í vegakerfi þá verð ég bara að segja að einkaframkvæmdir í samgöngubótum á Íslandi eru staðreynd. Kannski er þekktasta módelið Spölur hf. og rekstur Hvalfjarðarganga, sem í mínum huga hefur aldrei verið gróðafyrirtæki eins og ég kann þá sögu, og ég held að ég sé ekkert alslakur í henni. Í sjálfu sér hafa aldrei verið teknir peningar út úr þeirri framkvæmd til eigenda hlutafélagsins. Aftur á móti hefur framkvæmdin greitt sig hraðar upp og auknar tekjur hafa verið látnar renna til þess að flýta því að gjaldtökunni þar ljúki.

Ég held að það sé einmitt umræðan sem við eigum að taka um einkaframkvæmdir í vegamálum, hvort við eigum að viðurkenna það sem stórgróðafyrirtæki. Ég er sammála þingmanninum í því eða tel hann vera þeirrar skoðunar, ég ætla þá að biðja hann í seinni spurningunni um að hnykkja á því, að við eigum ekkert að stefna á einkaframkvæmdir í vegamálum sem stórkostlega arðsamar framkvæmdir fyrir eigendurna, ég er algjörlega þar.