fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Virðulegi forseti. Góðar samgöngur eru ein af grundvallarstoðum samfélagsins og geta haft úrslitaáhrif á búsetuval og uppbyggingu á landsbyggðinni. Björt framtíð leggur ríka áherslu á að efla skuli vistvænan og hagkvæman ferðamáta en samgöngur eru ein af aðaluppsprettum losunar gróðurhúsalofttegunda á Íslandi auk þess sem þær hafa haft áhrif á loftgæði.
Á heildina litið söknum við í Bjartri framtíð þess helst í þingsályktunartillögunni um samgönguáætlun til ársins 2016 að enn ríkari áherslu verði lögð á almenningssamgöngur, hjóla- og göngustíga, en einungis er áformað að setja 200 millj. kr. í hjóla- og göngustíga í ár en áætlunin 2011–2014 gerði ráð fyrir 250 millj. kr. Víða er mikil þörf á hjólastígum meðfram þjóðvegi 1, bæði sem vistvænum og hagkvæmum samgöngumáta en ekki síður sem tækifæri í ferðaþjónustu.
Við erum náttúrlega bara í fyrstu umferð hérna og eigum eftir að rýna þetta enn betur. En mig langar einnig til að skoða í umhverfis- og samgöngunefnd aðgerðina við Arnarnesveg. Lagt er til að kafli frá Reykjanesbraut að Fífuhvammsvegi verði gerður 2015 og 2016. Ég hlakka til að velta því aðeins fyrir mér hvort framkvæmdin sé forgangsatriði. Ég sé ekki í fljótu bragði góð rök fyrir henni. Í greinargerðinni er talað um að fjárveiting sé ætluð til að greiða kostnað við ýmis smærri verk sem ætlað sé að útrýma flöskuhálsum á einstaka stöðum og bæta þar með umferðarflæði, efla umferðaröryggi og bæta almenningssamgöngur með gerð sérreina fyrir strætisvagna og öðrum aðgerðum í þágu strætisvagna, svo sem við gatnamót.
Nú bý ég í Breiðholtinu. Ég hef sjálf ekki fundið fyrir þeim flöskuhálsi en þetta er væntanlega eitthvað sem við skoðum í nefndinni og ég hlakka til að takast á við það.
Við fyrstu sýn er þó margt gott í áætluninni sem okkur hugnast ágætlega í Bjartri framtíð. Til að mynda að Sundabraut sé komin á samgönguáætlun og okkur hugnast ágætlega, ólíkt hv. þm. Edward H. Huijbens, fjölbreyttari leiðir að fjármögnun eins og tillagan gerir ráð fyrir, svo framarlega sem það bæti úr brýnni þörf í samgöngumálum, reyndar að því tilskildu að vegfarendur hafi um aðrar leiðir að velja eins og raunin er í Hvalfjarðargöngum, Vaðlaheiðargöngum og hugmyndin er varðandi Sundabraut.
Við fögnum því einnig að auka eigi framlög til viðhaldsverkefna, það veitir víst ekki af. Eins erum við ánægð með að gerðar verði rannsóknir á væntanlegum Fjarðarheiðargöngum. Það þarf nefnilega að skoða alvarlega hvort göng undir Fjarðarheiði séu ekki nauðsynleg samgöngubót fyrir Seyðisfjörð.
Að lokum vil ég segja að sú vinna sem lögð er í samgönguáætlun hverju sinni er til fyrirmyndar og eftirbreytni og ætti að skoða í víðara samhengi hvort ekki sé hægt að innleiða slíka áætlunargerð og stefnumótun til lengri tíma í fleiri málaflokkum sem við höfum til umfjöllunar á Alþingi.