fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Virðulegur forseti. Hvaða varðar hina geigvænlegu skuldasöfnun á höfnina í Helguvík þá ítreka ég það sem ég hef áður sagt að það eru ákvarðanir sem menn verða að vinna úr með uppbyggingu á svæðinu og þeim tekjum sem menn hafa ráðgert að fá út úr þeim fjárfestingum sem þar eru.
Það er ákaflega áhugavert að heyra um Þorlákshöfn, en ég fékk ekki svar við spurningunni sjálfri þar að lútandi. Hv. þingmaður segir að þessar breytingar á Þorlákshöfn mundu kosta ótrúlega litla peninga en hvaða stærðargráðu erum við að tala um í því sambandi? Það er ákaflega áhugavert ef hægt er að auka mjög notagildi Þorlákshafnar. Hún liggur að mörgu leyti mjög vel við siglingum og í upplandinu frá höfninni í Ölfusinu eru veruleg tækifæri til uppbyggingar á ýmiss konar starfsemi sem nýtt getur slíka flutningaleið. Þar er mikill aðgangur að köldu vatni, að heitu vatni, að orkulindum alveg í nágrenninu og margvíslegir möguleikar til uppbyggingar í tengslum við stækkun hafnarinnar þar. Mér finnst því áhugavert að heyra frá hv. þingmanni, þegar hann segir að þessar breytingar mundu kosta ótrúlega litla peninga, hvaða stærðargráðu um er að ræða í því sambandi.