143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[18:49]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú kannski óvarlegt að tala um afar litlar fjárhæðir þegar maður talar um hafnarframkvæmdir, þetta eru auðvitað allt stórar fjárhæðir. Það eru í rauninni litlar fjárhæðir miðað við hugmyndina um uppbyggingu stórskipahafnar. Skotið er á að þessi framkvæmd gæti verið um eða innan við einn milljarð í allt, en þá erum við líka að tala um algjörlega breytta höfn sem býður upp á þessi tækifæri. Þarna er, eins og hv. þingmaður minntist á, kjörlendi fyrir uppbyggingu á iðnaði, algjört kjörlendi. Það er eins og hv. þingmaður minnist á, aðgangur að vatni og stutt í mikla orku og er mikill vilji og áhugi hjá íbúum og sveitarstjórnarmönnum í Þorlákshöfn á að byggja þarna upp framtíðariðnaðarsvæði þar sem höfnin mun skipta miklu máli.

Einnig hefur verið rætt um tækifæri í ferjusiglingum til útlanda þannig að uppbygging í Þorlákshöfn í þessa veru er alveg gríðarlega verðmætaskapandi framkvæmd fyrir þessa höfn og fyrir þetta samfélag í Þorlákshöfn sem þarf virkilega á því að halda núna að við spýtum aðeins í lófana og stöndum með því fólki sem þar er. Þar hefur kvótinn minnkað og atvinnan þarf að vera meiri. Það vantar svolítið „fútt“ í bæjarbraginn, og ég held að það sé einmitt verkefni okkar þingmanna Suðurkjördæmis að hjálpa til og koma þessu verkefni í höfn. Ég held að það væri klókt og ég veit að þeir eru komnir með þetta á teikniborðið hjá Vegagerðinni og það er í góðum höndum þannig að við munum frétta nánar af því á næstu dögum. Ég vona að ég hafi svarað þingmanninum þeirri spurningu sem hann spurði hérna.

Varðandi Helguvíkina er það auðvitað ekki bara vandamál íbúa Reykjanesbæjar, það er vandamál okkar allra þegar framkvæmdir stöðvast. En sem betur fer er uppbygging að fara í gang og auðvitað (Forseti hringir.) mun það létta undir með höfninni.