143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[19:18]
Horfa

Haraldur Einarsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega og öfluga ræðu og sérstaklega fyrir að kveikja í mínu íþrótta- og útivistarhjarta þegar hann leiddi mig inn í hjólatúra á fínum sumardegi um Suðurland.

Ég ætla að taka undir með þingmanninum en vil jafnframt benda honum á, þar sem ég bý þarna á svæðinu, að ég tek ég eftir því að þarna ferðast mjög margir ferðamenn á reiðhjólum. Mig minnir að eftir göng um Reynisfjall verði hæðarmismunurinn frá Hveragerði og niður að Höfn nánast enginn, þannig að það yrði mjög hentugt að hafa þar hjólaleiðir. Sveitarfélög með dreifðari byggð hafa einnig óskað eftir hjólaleiðum, t.d. Árborg þar sem er Stokkseyri, Eyrarbakki og Selfoss. Þar er hæfilega langt á milli til þess að einhverjum gæti dottið í hug að hjóla.

Eitt sem ég held að sé kannski vandamál hjá okkur núna á Suðurlandinu, af því að svo margir ferðast þar um með þessum samgöngumáta, er að þeir hjóla annaðhvort á reiðvegum eða þjóðvegum. Ég held að það sé mjög óheppilegt að blanda því saman. Ég tek því vel í þessa hugmynd hjá þingmanninum og mun örugglega halda áfram að tala fyrir henni með honum.

Mig langar að spyrja þingmanninn, af því að ég held að hann viti ýmislegt um ferðaþjónustu og slík mál: Hversu auðvelt eða erfitt mundi hann halda að væri að markaðssetja Suðurland sem hjólasvæði?