fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin og tek heils hugar undir það að þetta er hollur og góður lífsstíll sem við ættum að sjálfsögðu að ýta undir og gefur okkur tækifæri í ferðaþjónustu eins og hann nefnir.
Mig langar í seinni spurningu minni að spyrja um það sem hann nefndi í ræðu sinni um almenningssamgöngur og ferðaþjónustu, að almenningssamgöngur gætu aðlagast ferðaþjónustunni. Mig langar að biðja hann um að skýra þetta aðeins betur. Hvernig fer það saman við hitt, að aðlaga ferðaþjónustuna að almenningssamgöngum? Nú sjáum við að á ferðaþjónustuleiðum er stoppað á mörgum stöðum sem henta kannski ekki fólki sem notar almenningssamgöngur. Tökum sem dæmi Suðurlandsumdæmið, að fara frá Höfn til Reykjavíkur. Það mundi kannski ekki henta fólki á þeirri leið að stoppa á mörgum stöðum. Sér þingmaðurinn fyrir sér eitthvert sambland af þessu eða hvað? Hann er kannski með betri og úthugsaðri hugmyndir en ég fékk fram hjá honum áðan. Ég vil biðja hann um að fara aðeins betur yfir þetta.