fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Hæstv. forseti. Ég vitnaði í það að mikil samstaða hefði verið á Vestfjörðum um forgangsröðun vegaframkvæmda, þ.e. að Vesturlandsvegur 60 sé þar efst á blaði en síðan komi Dýrafjarðargöngin og Dynjandisheiðin samhliða. Bæði vorum við saman á fundi þingmanna Norðvesturkjördæmis, meðal annars með Ísfirðingum, og höfum raunar verið að ræða við laxeldisfyrirtæki um möguleika á uppbyggingu á Vestfjörðum. Ekki er vanþörf á nú þegar menn eru að fara með stórt fyrirtæki frá Þingeyri, forsvarsmenn Vísis boða að þeir ætli að vera farnir þaðan innan árs. Eitt af því sem var rætt í því sambandi, og mig langar aðeins að heyra betur um frá hv. þingmanni, var hvort ekki væri ástæða til að flýta Dýrafjarðargöngunum. Við sjáum eingöngu tölur, upp á 250 millj. kr., fara í undirbúning á árinu 2016 en sjáum ekki hvenær ljúka eigi framkvæmdinni, við höfum ekki séð það, það var að vísu sett inn í langtímaáætlunina.
Ef menn ætla að vinna saman á milli svæða, þ.e. milli suðurfjarðanna og norðursvæðisins, þá liggur alveg beint við að tryggja þarf samgöngur sem duga allt árið. Við sáum í fréttatíma nú í kvöld að það er 15 metra stál í snjógöngum á Hrafnseyrarheiðinni sem við erum að tala um og erfitt að opna þá leið á þessum árstíma, þannig að við erum bókstaflega að tala um að leiðin sé lokuð langtímum saman.
Á sama tíma er verið að tala um sameiningu stofnana og aukið samstarf á milli svæða og ef við ætlum að ná árangri þurfa Vestfirðingar að fá hringveg sem er opinn allt árið og vel fær, það er líka út af ferðaþjónustunni og þá getur maður borið það sama við Héðinsfjarðargöngin.
Mig langar að heyra hv. þingmann fara aðeins yfir þetta, sem þekkir landsvæðið miklu betur en ég, hvernig þetta (Forseti hringir.) blasir við henni.