fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar aðeins að spyrja hann út í framkvæmdir eins og jarðgangaframkvæmdir og þá ekki jarðgöng sem eru komin á samgönguáætlun heldur jarðgöng sem hafa verið í umræðunni, það eru Súðavíkurgöng. Í þessari áætlun er verið að veita fjármagn í uppbyggingu snjóflóðavarna á Súðavíkurhlíð, sem er mjög hættuleg leið og hafa oft fallið stór og mikil snjóflóð þar, slys hafa orðið og oft legið við mjög alvarlegum slysum. Heimamenn hafa stofnað hóp til þess að knýja á um að koma Súðavíkurgöngum inn á samgönguáætlun. Mig langar að heyra viðhorf hv. þingmanns gagnvart því. Og einnig á framkvæmdum á Ströndum í Árneshreppi. Þar eru áætlanir um uppbyggingu vega í Árneshreppi, Veiðileysuhálsi og Bjarnarfjarðarhálsi, og í samgönguáætluninni er sett fjármagn í Bjarnarfjarðarháls. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér framkvæmdir á því svæði? Menn hafa auðvitað beðið mjög lengi og oft hafa komið hátt stemmdar yfirlýsingar frá okkur þingmönnum um að hraða ætti uppbyggingu samgangna til Árneshrepps, sem er auðvitað afskekktasti staður landsins að ég mundi telja samgöngulega séð. Telur hv. þingmaður að það sé með einhverjum hætti hægt að taka þetta svæði út fyrir (Forseti hringir.) sviga og flýta framkvæmdum þar?