fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Herra forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það geti verið að þær athugasemdir sem hann gerði við jarðgangaframkvæmdir sérstaklega byggi á misskilningi, hvort Páll Jóhann Pálsson, hv. 5. þm. Suðurk., hafi ekki áttað sig á því að Vaðlaheiðargöngin eru sjálfstæð gjaldtökuframkvæmd sem hvorki hefur áhrif á aðrar jarðagangaframkvæmdir né önnur almenn vegagerðarverkefni. Til ganganna rennur ekkert fé af samgönguáætlun og þau eiga að standa undir sér með veggjöldum, sem menn ætla að borga þarna með bros á vör til að fá framkvæmdina fyrir norðan. Ég fæ því ekki skilið með hvaða rökum hv. þingmaður telur að hann hefði viljað sjá önnur jarðgöng á undan þeim, svo sem eins og Dýrafjarðargöng, að þau kæmust fyrr að, væntanlega er það ekki vegna þess að hann vilji gjaldtöku í Dýrafjarðargöngum og að þeim verði flýtt á slíkum forsendum.
Varðandi vegtengingu á hafnarsvæðinu við Húsavík og norður á iðnaðarlóðina á Bakka þá er þar um tilfallandi innviðafjárfestingu að ræða sem er algjörlega tengd því verkefni. Af því verður ekki nema þessar framkvæmdir fari af stað, fyrirvari er á því að í það verði ekki ráðist, frekar en uppbyggingu hafnarinnar, nema af framkvæmdunum verði.
Fari þær hins vegar af stað yrði þar um langstærsta nýfjárfestingarverkefni að ræða á Íslandi eftir hrun og af því leiða umtalsverðar tekjur og vöxtur inn í hagkerfið, enda var það þannig í áformum fyrri ríkisstjórnar að þeir fjármunir yrðu ekki sóttir til samgönguáætlunar heldur yrði um hreina fjárfestingu úr ríkissjóði að ræða í innviðunum til að koma þessu fjárfestingarverkefni af stað. Ef hv. þingmaður telur að sú framkvæmd trufli eitthvað forgangsröðun í vegamálum ætti hann að spyrja sína eigin hæstv. ráðherra að því hverju sætir að nú er valin (Forseti hringir.) sú leið að sækja fjármuni í þetta verkefni inn í samgönguáætlun, sem ekki stóð til.