fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.
Virðulegi forseti. Spurningar mínar eiga hugsanlega betur við fyrri ræðu þingmannsins í kvöld en mig langar þó að byrja aðeins á umræðunni um einkaframkvæmdina. Ég tek undir það að mikilvægt er að skýra umræðuna þannig að öllum sé ljóst við hvað er átt þegar talað er um einkafjármögnun eða einkaframkvæmdir. Mig langar að spyrja þingmanninn: Eru einhver tiltekin brýn verkefni fram undan sem þingmaðurinn telur að einkaframkvæmd gæti átt við?
Síðan langar mig að koma inn á þróun almenningssamgangna. Þar held ég að hafi safnast upp dýrmæt reynsla og þekking á síðustu árum sem er mikilvægt að byggja á áfram. Hvernig telur þingmaðurinn að því verkefni verði best haldið áfram eða það verði best þróað áfram? Væri það í samspili ríkis og sveitarfélaga eða á einhvern annan hátt? Í því efni hugsa ég ekki síst til Norðausturkjördæmis.
Þingmaðurinn fór í fyrri ræðu sinni ágætlega yfir þá stofnvegi sem eru ómalbikaðir og það eru allt of margir kílómetrar af ómalbikuðum vegum á Norður- og Austurlandi. En eitt af því sem ég held að hafi ekki komið fram í umræðunni í dag er að enn eru sveitabæir sem standa við mjög umferðarþunga malarvegi og eru allt sumarið í stöðugum rykmekki. Þekkir þingmaðurinn til umræðu um það í gegnum árin? Mig langar að spyrja hvort ekki sé mögulegt að bæta þar úr án þess að grípa endilega til þess að malbika tugi kílómetra í leiðinni.