143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

fjögurra ára samgönguáætlun 2013--2016.

495. mál
[22:35]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi einkaframkvæmd, einkafjármögnun og allt þetta var ég eiginlega að stinga upp á því að menn prófuðu að taka umræðuna meira á grundvelli aðgreiningar í gjaldtökuframkvæmdir og ekki gjaldtökuframkvæmdir og mundi láta aðeins liggja á milli hluta hvort einkaaðilar kæmu þar við sögu. Auk þess er rétt að hafa „einka“ innan gæsalappa í ljósi reynslunnar, það hafa fyrst og fremst verið sveitarfélög og opinberir aðilar sem hafa tekið höndum saman um að stofna félög til að flýta einhverjum slíkum framkvæmdum.

Brýn verkefni þar sem við gætum hugsanlega nýtt að einhverju leyti þessa gjaldtökuleið. Já, það er viðkvæmt að ræða um það. En ég tel að ef t.d. einhver gjaldtaka gæti hjálpað til við að koma Seyðisfjarðargöngum áfram um fimm eða tíu ár þannig að sú gjaldtaka tæki þátt í kostnaði við verkefnið væri það hugsanlegt. Hún mundi að sjálfsögðu aldrei borga það allt, það er fullkomlega óraunhæft en það má vel velta því fyrir sér ef menn fá slíka samgöngubót — og hefðu mátt gera fyrr og í fleiri tilvikum — að umferðin sem nýtur viðkomandi gæða taki einhvern þátt í kostnaðinum með hóflegu veggjaldi. Ég skal nefna Héðinsfjarðargöng, hvort sem ég verð vinsæll af því á Siglufirði eða ekki. Það ætti að koma til greina að umferðin sem fær slíkan happdrættisvinning taki einhvern þátt í því með gjaldi. Dugar þar 20%, 30% þá hjálpar það til og getur hugsanlega greitt fyrir því að viðkomandi framkvæmd komist fyrr áfram.

Varðandi tengivegina og héraðsvegina sem ég var að nefna sérstaklega, sitt hvorum megin við 1.000 kílómetra á norðursvæðinu, gríðarlega umfangsmikið vegakerfi, þá er mjög brýnt að komast áleiðis með þá.

Þetta vandamál þar sem umferðin liggur fram hjá bæjum eða jafnvel þéttbýliskjörnum og rykið og pollarnir ausast í allar áttir er vel þekkt. (Forseti hringir.) Það er hugsanlega hægt að taka á orðalagi greinargerðarinnar um óskipta pottinn, um að leggja bundna slitlagsbúta fram hjá slíkum stöðum. (Forseti hringir.) Það hefur aðeins verið gert til að hlífa mönnum við mestu óþægindum af slíku ástandi.