143. löggjafarþing — 94. fundur,  9. apr. 2014.

flutningur netöryggissveitar til ríkislögreglustjóra.

520. mál
[23:06]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg hver ástæðan er að baki öllu þessu fyrirkomulagi, ég vona að hæstv. ráðherra geti frætt mig um það. Mér sýnist hér verið að flytja netöryggissveitina, en samt er Póst- og fjarskiptastofnun einhvern veginn yfir þessu líka. Ég verð að segja eins og er að ég skil þetta ekki alveg, kannski er klukkan orðin svo margt en ég velti fyrir mér hvers vegna báðar þessar stofnanir sjái um þetta verkefni.