staðan á leigumarkaði.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Árna Páli Árnasyni fyrir að vekja athygli þingheims ítrekað á stöðu leigjenda og mikilvægi þess að við bjóðum upp á fjölbreyttari búsetuform en við höfum gert hingað til. Við hv. þingmaður erum mjög sammála hvað þetta varðar og þetta hefur verið megináherslan í vinnu verkefnisstjórnar um framtíðarskipan húsnæðismála. Menn hugi ekki bara að stöðu Íbúðalánasjóðs, eins og var kannski allt of oft hér áður fyrr, heldur skoði húsnæðismarkaðinn í heild sinni og hvernig hægt er að styðja við þau þrjú búsetuform sem eru til staðar á húsnæðismarkaðnum. Þau eru séreign, búseturétturinn og síðan leigufélög.
Það sem ég hef þegar gert í minni tíð sem ráðherra er að ég hef undirritað reglugerð um Íbúðalánasjóð þannig að Íbúðalánasjóður gat byrjað að lána til leigufélaga. Það hefur gengið ágætlega síðan reglugerðin tók gildi og umtalsverðir fjármunir hafa farið til leigufélaga sem eru að hefja framkvæmdir. Ég hef líka tekið undir þær hugmyndir sem Reykjavíkurborg hefur verið með um uppbyggingu á leigu- og búseturéttarhugmyndum í Reykjavík. Þær endurspegla þá stöðu að það er eftirspurn eftir leiguíbúðum, sérstaklega í Reykjavík, meðan það virðist aftur á móti vera öfugt eins og t.d. í Kópavogi. Þar virðist vera meiri eftirspurn eftir að komast í eigið húsnæði.
Ég hef líka lagt áherslu á það í vinnu verkefnisstjórnarinnar að taka þær hugmyndir sem var ekki búið að ljúka vinnu við í tíð fyrri ríkisstjórnar og snúa að húsnæðisbótakerfinu í heild sinni. Þær snerust fyrst og fremst um húsaleigubætur en hugmyndin sem var samþykkt í þeim hópi sem ég sat í um mótun húsnæðisstefnu var sú að leggja áherslu á að búa til eitt kerfi. Það hafa komið fram nýjar hugmyndir um vaxtabætur, (Forseti hringir.) hvernig þær ættu frekar að fara inn á höfuðstól lána, í tillögu verðtryggingarnefndar, en ekki greiddar út eins og hingað til. (Forseti hringir.) Þetta er allt saman verið að vinna og verkefnisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni skila af sér í lok apríl.