flýtimeðferð í dómskerfinu.
Herra forseti. Mig langar að minna hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra Eygló Harðardóttur á ályktun framsóknarmanna fyrir kosningar. Þetta var á flokksþingi og þar var sagt, með leyfi forseta:
„Brýnt er að lausn fáist sem fyrst í dómsmál varðandi skuldir heimilanna en ólíðandi er hve langan tíma hefur tekið að greiða úr málum, því skal tryggja flýtimeðferð slíkra mála.“
Þessi flýtimeðferð hefur verið tryggð með lögum. Hæstv. ráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir gerði það síðasta sumar. Fyrir jólin skapaði hún líka svigrúm þannig að fólki verður ekki vísað af heimilum sínum fram í september. Nú hafa Hagsmunasamtök heimilanna farið af stað með dómsmál um skuldamál heimilanna. Þetta er dómsmál gegn Íbúðalánasjóði um verðtrygginguna, hvort hún hafi verið ólöglega útfærð. Íbúðalánasjóður eða yfirstjórnin ákvað hins vegar, skiljanlega, að láta vísa málinu frá en það er náttúrlega hlutverk þeirra sem starfsmenn að verja Íbúðalánasjóð og ef þeir geta ekki gert það ættu þeir kannski ekki að sitja þar áfram. En ráðherra getur gripið inn í og verið stefnumótandi hvað þetta varðar.
Þetta er það sem flokksþing Framsóknarflokksins sagði og þetta eru ákvæðin í kosningaloforðunum. Þar kemur fram að tryggja skuli flýtimeðferð dómsmála er varða skuldir heimilanna. Ráðherra getur gripið hérna inn í, það hef ég fengið staðfest. Ráðherra getur gripið inn í og fengið Íbúðalánasjóð til að falla frá þessari frávísun, bara svo þið skilji stöðuna. Fyrir fimm mánuðum síðan fóru Hagsmunasamtök heimilanna af stað með þessa málsmeðferð. Fyrir þremur mánuðum síðan var málið dómtekið og dómurinn settur á þá. Svo líða þrír mánuðir í viðbót, frávísunarkrafan kemur og þegar á að taka hana upp áttar dómarinn sig skyndilega á því að hann er með verðtryggt húsnæðislán og þar af leiðandi ekki dómtækur í þessu máli svo hann segir sig frá því. Málinu seinkar sífellt. Getur hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra ekki gripið inn í og stöðvað að Íbúðalánasjóður krefjist þess að málinu sé vísað frá þannig að stefna hennar eigin flokks og kosningaloforð um að dómsmálum er varða húsnæðisskuldir heimilanna skuli flýtt standi?