143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

mat á umhverfisáhrifum.

467. mál
[11:34]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Þetta er að sjálfsögðu eitthvað sem ég tel að fara þurfi vel yfir í nefndinni. Eins og ég sagði áðan þekki ég sjónarmið Sambands íslenskra sveitarfélaga, skil þau alveg, en hef af þessu áhyggjur.

Það sem hv. þingmaður nefnir um burði sveitarfélaganna þá er það nokkuð sem er vel þekkt þegar um er að ræða stærri verkefni. Við þekkjum flutning málefna fatlaðra, við þekkjum fyrirætlanir um flutning á málefnum aldraðra og hugmyndir sem hafa verið uppi um að flytja til að mynda framhaldsskólana yfir til sveitarfélaganna. Nú þekki ég það síðasta reyndar best frá mínu fyrra starfi og get sagt að það eru hugmyndir þar sem sveitarfélögin skiptast mjög í tvö horn eftir stærð, þ.e. þau sveitarfélög sem eru stór og telja sig þess megnug í raun og veru að geta tekið við slíku stóru verkefni og hins vegar smærri sveitarfélög sem óar við því að hafa til að mynda ekki framhaldsskóla innan sinna raða, eru ekki nægilega stór til að stofna einn slíkan og þurfa þá í raun og veru að vera upp á samskipti við önnur sveitarfélög komin til að fá framhaldsskólamenntun. Við þekkjum vandkvæðin sem því hafa fylgt í málefnum tónlistarskólanna þar sem voru til skamms tíma vistarbönd á tónlistarnámi milli sveitarfélaga.

Heilt yfir held ég að ef stefnan á að vera sú að færa fleiri verkefni yfir til sveitarfélags hvað varðar nærþjónustu og stjórnsýslu, eins og þetta verkefni snýst um, hljótum við auðvitað að horfast í augu við það að sveitarfélögin þurfa þá að vera burðugri til að taka við þeim. Við höfum ekki í minni hreyfingu verið fylgjandi valdþvingun í þeim málum en hins vegar held ég að aukinn kraftur færist í þá umræðu samhliða flutningi fleiri verkefna hjá sveitarstjórnunum sjálfum á næstu árum. Ef við horfum til dæmis á þessi stærri verkefni held ég að það komi fátt annað til greina en að horfa á stærri sveitarfélög.