143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

mat á umhverfisáhrifum.

467. mál
[11:36]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Auðvitað er það líka þannig að stærri og öflugri sveitarfélög, hygg ég, eru betur í færum til að standast nærþrýsting en smærri sveitarfélög með veikari stjórnsýslu.

Ég vildi spyrja hv. þingmann út í það sem hún nefndi að þetta mál hefði verið stöðvað af stjórnarandstöðunni á liðnu kjörtímabili. Hér er náttúrlega um EES-mál að ræða og skuldbindingar okkar Íslendinga í því samstarfi. Skildi ég það rétt að málið hafi verið algerlega óbreytt, sem hæstv. ráðherra hefur þá lagst í veg fyrir að yrði hér að lögum nema hvað varðar þetta eina litla atriði um þennan eina litla flokk framkvæmda sem færist til sveitarfélaganna en var ekki í því? Er þetta ekki óvenjuleg meinbægni í þinglegri meðferð að koma í veg fyrir afgreiðslu máls í þinginu á ekki merkilegra efnisatriði en raunin er, verð ég að leyfa mér að segja, fyrst ráðherra sem lagst hefur gegn afgreiðslu málsins fyrir skömmu síðan flytur það svo meira og minna óbreytt hér í þinginu?

Þá vildi ég kannski fá að nota tækifærið og spyrja hv. þingmann aðeins út í orð sem hún hafði um Árósasamninginn. Það hefur verið mjög mikilvægur þáttur í þróuninni hjá okkur að tryggja rétt almennings til aðkomu í þeim málum sem varða umhverfið, umhverfismat og aðra slíka hluti. Ég áttaði mig ekki alveg nákvæmlega á samspilinu milli Árósasamningsins og þessa máls, ef þingmaðurinn gæti aðeins skerpt á því.