143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

staða hafrannsókna.

[13:49]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mikilvægi öflugra hafrannsókna fyrir fiskiþjóð eins og Íslendinga er óumdeilt og því vekur það furðu að ekki eigi að halda úti rekstri á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni en búið er að segja upp hluta af áhöfninni eins og komið hefur fram. Framlög ríkisins til Hafrannsóknastofnunar eru komin að hungurmörkum og er það óásættanlegt þar sem hluta veiðigjalda er ætlað að standa undir rannsóknum Hafrannsóknastofnunar og fjármagna þannig þjónustu við sjávarútveginn.

Nú bregður svo við að vegna fjárhagslegra erfiðleika stofnunarinnar verður haustrallið, þ.e. stofnmæling botnfisks, fjármagnað með sérstakri úthlutun aflaheimilda til að Hafró geti staðið undir rannsóknum sínum og leigi þá önnur skip til þeirra verkefna.

Það hefur komið fram hjá Hafrannsóknastofnun að þessi mikli samdráttur í rekstri muni draga verulega úr rannsóknum og auka óvissu í mati á fiskstofnum við landið. Til dæmis verður ekki hægt að sinna mælingum á úthafsrækju í sumar eða fleiri brýnum verkefnum í ár.

Óvissa í mati fiskstofna getur bæði leitt til ofveiði og lækkunar aflamarks, sem þýðir auðvitað tekjutap fyrir þjóðina. Hraðar breytingar á hitastigi og lífríki sjávar kalla á enn frekari vöktun og rannsóknir á þeim fiskimiðum sem við Íslendingar nýtum og berum ábyrgð á. Súrnun sjávar er mikið áhyggjuefni og þjóðir heims glíma við loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra. Þess vegna þurfum við líka að (Forseti hringir.) standa vaktina og hafa öflugar rannsóknir svo við getum nýtt sjávarmið okkar á sjálfbæran hátt.