mat á umhverfisáhrifum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og umræðu um frumvarpið um mat á umhverfisáhrifum. Það kom ýmislegt fram í ræðu hv. þingmanns sem maður vildi spyrja aðeins út í, meðal annars það að frumvarpið hefði strandað á fyrra þingi vegna andstöðu stjórnarandstöðu á þeim tíma. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður gæti farið aðeins nánar ofan í saumana á því hvað það var sem þáverandi stjórnarandstaða hengdi sig á til að tefja fyrir þessu máli.
Í annan stað langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sáttur við flokkana og hvernig einstökum efnisatriðum er raðað í þá innan flokkanna, þ.e. taldar eru upp ýmiss konar framkvæmdir sem falla í ólíka flokka, A, B og C til mats á umhverfisáhrifum, alls kyns hlutir. Hv. þingmaður lagði áherslu á eitt atriði er varðar öryggissjónarmið í vegaframkvæmdum, en er það fleira sem hann getur tínt til af þessum flokkum sem hann er sáttur eða ósáttur við?
Ástæða þess að ég spyr, og kem ég þá að þriðju spurningunni og jafnframt þeirri síðustu, snýr að því hvernig þingmaður sér fyrir sér að við gætum haft áhrif á slíka röðun. Nú er það svo að frumvarpið kemur til okkar í gegnum EES-tilskipanir, og eins og hv. þm. Helgi Hjörvar orðaði það, þetta var nánast sent í pósti til okkar. Hvernig sér þingmaðurinn fyrir sér að við gætum haft áhrif á mótun svona flokka og lista eins og þarna eru við núverandi aðstæður og núverandi samskipti við Evrópusambandið? Hvaða breytingar sér hann fyrir sér að öðru leyti miðað við núverandi aðstæður?