mat á umhverfisáhrifum.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé ágætt að halda áfram samræðunum um þetta mál. Hv. þingmaður kom með ágætisyfirferð á því hvað breyttist við að bæta við flokknum C en þar með koma sveitarfélögin að umhverfismati á ákveðnum verkefnum. Mig langar að inna hann betur eftir því sem hann kom með um hvernig eigi að fara með þetta verkefni hjá sveitarfélögum sem eru allt frá því að vera 50 íbúar og upp í að vera höfuðborgin með yfir 100 þúsund íbúa, hvernig hægt sé að gera sömu kröfur, hvort menn eigi hugsanlega að bregðast við á svipaðan hátt. Nú hef ég ekki skoðað það nákvæmlega í frumvarpinu, en að búa til heilu svæðin, þ.e. að menn mundu fela einhverjum byggðasamlögum eða stærri aðilum, eins og gert hefur verið í öðrum málaflokkum, að sinna því verkefni.
Þessu tengt langar mig að vekja athygli á því að það eru líka framtíðarákvarðanir fyrir ákveðin svæði, eins og t.d. hefur verið gert á Snæfellsnesi með mjög góðum árangri þar sem menn hafa búið til umhverfisvottun fyrir ákveðið svæði, eru aðilar að svokölluðu Earth Check-verkefni sem er fyrirbyggjandi vinna, þ.e. menn eru búnir að setja rammann eða setja reglurnar, setja viðmið, fyrir hvað þeir ætla að standa, í hverju þeir ætla að vera góðir, hvaða kröfur þeir ætla að gera. Það mun auðvelda bæði sveitarfélögunum að taka ákvarðanir og eins íbúunum að vega og meta hvort viðkomandi framkvæmdir eru í samræmi við þessar áætlanir.
Því hefur svo verið fylgt eftir með því að búa til sérstakt svæði, svæðisgarð Snæfellsness sem nýlega var skrifað undir samning um, sem líka er ákvörðun um að á viðkomandi svæði fylgi menn ákveðnum reglum, ákveðnum kröfum og ætti það að hindra togstreitu og átök, þetta heitir Samvinna í samkeppni þar, og getur tryggt að menn verði að (Forseti hringir.) vinna saman um það hvernig við nýtum náttúru okkar um leið og við verndum hana.