143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

mat á umhverfisáhrifum.

467. mál
[14:35]
Horfa

Edward H. Huijbens (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin við ræðu minni og spurningarnar.

Tvær spurningar voru bornar fram. Annars vegar var það hvernig ég sæi fyrir mér framkvæmd þessara laga í sveitarfélögum sem eru allt frá því að vera 50 hræður upp í 100 þúsund manns, eða hræður þá væntanlega líka. Hitt varðar þau sveitarfélög sem hafa þróað sig upp í að hafa svæðisgarð á forsendum umhverfismála.

Hvað varðar sveitarfélögin kom ég svolítið inn á það í ræðu minni að ég er ekkert sérstaklega hlynntur eða áfram um að neyða sveitarfélögin í einhvers konar sameiningu. Ég tel að sveitarfélög verði að hafa það eins og þau vilja á hverjum stað, en það eru ákveðnir hlutir sem þarf aðeins að færa yfir í æðri farveg, skulum við segja, eða ofar í skipulagsstiganum og ég horfi á svæðisskipulagið og svæðisskipulagsvinnu sem er núna lögformlega skilgreind í lögum um landsskipulag og í þeirri vinnu sem þar fer fram. Svæðisskipulagsvinnunni þarf að gefa vægi. Henni þarf að gefa miklu meira vægi en nú er, á þeim grunni, á grunni svæðisskipulags, verður að móta langtímasýn í landnýtingu og skipulagi.

Langtímasýn í landnýtingu og skipulagi birtist okkur ágætlega í sveitarfélögunum á Snæfellsnesi sem hafa sameinast í svæðisgarðinum. En gallinn við þetta, eða ekki galli, það er auðvitað gott þar, er hins vegar að þetta er handahófskennt, það fer í raun og veru eftir áhugasviði sveitarstjórnanda hverju sinni hvað verður ofan á. Það vill svo til að þar er áhuginn mikill á uppbyggingu ferðaþjónustu og hann er mikill á umhverfismálum og er það vel, ég fagna því, enda hafa þeir farið í gegnum langt ferli, allt frá Green Globe og Earth Check og yfir í þennan svæðisgarð núna. En vandinn er, eins og ég segi, þar er áhuginn og sýnin en þar sem það er ekki fyrir hendi geta menn farið fram eins og þeim sýnist með allt öðrum hætti. Það er vandamál.

Ég vil sjá svæðiskipulagið sem öflugra stjórnsýslustig til mótunar langtímasýnar í landnýtingu og skipulagi.