skipulagslög.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010, með síðari breytingum. Megintilgangur frumvarpsins er að gera breytingu á bótaákvæði 51. gr. skipulagslaga en einnig eru lagðar til breytingar á öðrum ákvæðum laganna sem var talið nauðsynlegt að gera í ljósi reynslu af framkvæmd laganna.
Skipulagslög nr. 123/2010 tóku gildi þann 1. janúar 2011. Í nefndaráliti umhverfisnefndar vegna meðferðar Alþingis á frumvarpi því sem varð að áðurnefndum skipulagslögum beindi nefndin því til umhverfisráðuneytis að hefja vinnu við skoðun á bótaákvæðum skipulagslaga í samráði við hlutaðeigandi aðila og sérfræðinga. Greiningarvinna ráðuneytisins leiddi í ljós að ástæða væri til að taka bótaákvæði skipulagslaga til endurskoðunar. Ráðuneytið fékk Trausta Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, til að vinna lögfræðilega álitsgerð um bætur vegna skipulagsáætlana. Í álitsgerð hans eru lagðar til breytingar á skipulagslögum sem fela í sér skýrari reglur um það hvenær gildistaka skipulags eða áhrif þess geta leitt til bótaskyldu af hálfu sveitarfélaga eða ríkisins. Við samningu frumvarpsins var byggt á framangreindri álitsgerð og haft var samráð við sveitarfélögin og aðra hagsmunaaðila.
Í áðurgreindri álitsgerð um bætur vegna skipulagsáætlana er fjallað um eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og eignarnám ásamt umfjöllun um skaðabótaskyldu vegna skipulags samkvæmt 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Einnig er þar fjallað um þörf á breytingu á 51. gr. skipulagslaga, m.a. með hliðsjón af hagsmunum almennings, sveitarfélaga og fasteignareigenda.
Var það tillaga höfundar álitsgerðarinnar að unnið yrði að tillögu um breytingar á skipulagslögum sem fæli í sér að settar yrðu nákvæmari reglur um það hvenær gildistaka skipulags eða áhrif þess gæti leitt til bótaskyldu sveitarfélaga. Með því yrði stefnt að því að draga úr óvissu um mögulegan bótarétt fasteignareigenda vegna almennra áhrifa skipulagsáætlana en um leið yrði leitast við að setja skýrari reglur um það hvaða sérstöku takmarkanir á eignarráðum bæri að bæta.
Í frumvarpinu eru lagðar til þrjár greinar sem fjalla um bætur vegna skipulags og yfirtöku eigna, ákvörðun bóta og bótakrafna og bótaskyldu annarra en sveitarfélaga. Tillögurnar fela það í sér að sett er fram með skýrari hætti hvenær bótaréttur stofnast vegna gildistöku eða framkvæmdar skipulagsáætlunar og er breytingunum ætlað að endurspegla gildandi réttarframkvæmd og eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskrárinnar. Hliðsjón er einnig höfð af sambærilegum bótareglum í eldri skipulagslögum, ekki síst skipulagslögunum frá 1964. Ítarlega er fjallað um breytingarnar í athugasemdum við frumvarpið.
Í frumvarpinu eru jafnframt lagðar til breytingar á öðrum ákvæðum laganna sem var talið nauðsynlegt að gera í ljósi reynslu af framkvæmd laganna. Í frumvarpinu er því meðal annars lögð til breyting á ákvæði um hæfi skipulagsfulltrúa. Lagt er til að sömu kröfur og gerðar eru um hæfi þeirra séu gerðar til annarra þeirra sem falin er gerð skipulagsáætlana. Sams konar ákvæði er nú þegar að finna í skipulagsreglugerð en einnig þykir ástæða til að kröfur þessar komi skýrt fram í lögunum sjálfum.
Í frumvarpinu er lögð til breyting á ákvæðum er varðar grenndarkynningu og óverulegar breytingar á deiliskipulagi sem miða að því að gera ákvæðin skýrari og aðgengilegri án þess að um efnisbreytingu á lögunum sé að ræða. Lögð er til breyting á ákvæði er varðar heimild sveitarfélaga til að leggja á dagsektir vegna stöðvunar framkvæmda. Lagt er til að heimilt verði að leggja dagsektir á framkvæmdaraðila eftir eitt ár í stað tveggja ára eins og nú er. Með breytingunni opnast sá möguleiki fyrir sveitarstjórnir að fara vægari leið við beitingu þvingunaraðgerða þegar um stöðvun framkvæmda er að ræða. Í skipulagslögum er kveðið á um að sveitarstjórnir geti fellt framkvæmdaleyfi úr gildi ef framkvæmdir stöðvast í eitt ár eða lengur. Með breytingunni getur sveitarstjórn nú valið að leggja á dagsektir í stað þess að fella framkvæmdaleyfi úr gildi ef framkvæmd stöðvast í eitt ár eða lengur.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á ákvæðum um tilkynningu sveitarstjórna til Skipulagsstofnunar um endurskoðun aðalskipulags eftir sveitarstjórnarkosningar. Í skipulagslögum er ekki að finna neina tímafresti og er því lagt til að frestur sveitarstjórna til að tilkynna til Skipulagsstofnunar hvort farið verði í endurskoðun aðalskipulags í kjölfar sveitarstjórnarkosninga verði að jafnaði 12 mánuðir. Sams konar breyting er lögð til á ákvæði er varðar tilkynningu svæðisskipulagsnefndar til Skipulagsstofnunar um endurskoðun svæðisskipulags.
Lagt er til að heimilt verði fyrir sveitarstjórn að taka fyrir á sama fundi beiðni um heimild til handa landeiganda eða framkvæmdaraðila að vinna sjálfur að gerð deiliskipulags ásamt samþykki á lýsingu á skipulagsverkefninu. Markmiðið með breytingunni er að einfalda ferli við gerð deiliskipulags þegar landeigandi eða framkvæmdaraðili eiga frumkvæði að gerð deiliskipulags og einnig að gera ferlið skýrara.
Með frumvarpinu er lagt til að frestur sveitarstjórna til að senda Skipulagsstofnun deiliskipulag sem samþykkt hefur verið af sveitarstjórn og samantekt um málsmeðferð ásamt athugasemdum og umsögnum um þær verði lengdur úr átta vikum í sex mánuði. Tímafresturinn í núgildandi lögum hefur reynst of skammur þar sem meðferð sveitarstjórnar á athugasemdum og lagfæring hennar á gögnum hefur oft og tíðum tekið langan tíma, auk þess sem nokkur tími getur liðið á milli funda í fámennari sveitarfélögum.
Í frumvarpinu er að finna ítarlegri ákvæði um stafrænt skipulag. Lagt er til að ákvæði 1. mgr. 46. gr. laganna þar sem kveðið er á um að vinna skuli skipulagsáætlanir á stafræna kortagrunna verði breytt á þann hátt að það nái einnig yfir til skila á skipulagsáætlunum til Skipulagsstofnunar. Lagt er til að skipulagsáætlunum sé skilað á stafrænu formi til Skipulagsstofnunar og að Skipulagsstofnun geri skipulagsáætlanir aðgengilegar með stafrænum hætti.
Í dag er skipulagsgögnum, þ.e. uppdráttum og greinargerðum, skilað til Skipulagsstofnunar í pappírsformi og birtir Skipulagsstofnun á vef sínum þau gögn með pdf-sniði. Til að Skipulagsstofnun geti birt skipulagsgögn með stafrænum hætti og hægt sé að samnýta skipulagsáætlanir með öðrum gögnum þurfa þær að vera á stafrænu formi. Er lagt til í frumvarpinu að ákvæði er varðar stafrænt svæðis- og aðalskipulag taki gildi árið 2020 en árið 2025 fyrir stafrænt deiliskipulag. Einnig er í frumvarpinu að finna heimild fyrir ráðherra til að setja í reglugerð ákvæði um gerð og framsetningu stafræns skipulags og skil á stafrænum upplýsingum og leiðbeiningum Skipulagsstofnunar hvað þetta varðar.
Í frumvarpinu er lögð til breyting á ákvæði um staðfestingu ráðherra á aðalskipulagi í þeim tilfellum sem Skipulagsstofnun telur að um form- eða efnisgalla sé að ræða á skipulaginu. Lagt er til að frestur ráðherra til að taka ákvörðun um afgreiðslu skipulagsins verði lengdur úr sex vikum í þrjá mánuði. Gildandi frestur hefur reynst of knappur, m.a. í ljósi þess að samkvæmt núgildandi ákvæði ber ráðherra að leita umsagnar sveitarstjórnar áður en hann tekur ákvörðun og hefur hefðbundinn umsagnarfrestur innan stjórnsýslunnar verið tvær vikur. Ekki er óalgengt að sveitarstjórnir fundi aðeins einu sinni í mánuði í smærri sveitarfélögum. Jafnvel getur liðið lengri tími á milli funda og hefur því þurft að lengja umsagnarfrest þeirra. Mikilvægt er að ráðherra sé veittur hæfilegur tími til að yfirfara flókin mál og er þriggja mánaða frestur talinn hæfilegur málsmeðferðartími.
Í frumvarpinu er enn fremur lögð til breyting á 1. tölulið ákvæðis laganna til bráðabirgða þar sem fjallað er um meðmæli Skipulagsstofnunar með leyfi til framkvæmda þar sem ekki liggur fyrir staðfest aðal- eða svæðisskipulag eða samþykkt deiliskipulag og meðmæli stofnunarinnar með auglýsingu á tillögu á deiliskipulagi þegar ekki liggur fyrir staðfest aðal- eða svæðisskipulag. Lagt er til að tilvísun í svæðisskipulag og deiliskipulag sé felld brott úr ákvæðinu og að kveðið sé á um tímamörk meðmæla Skipulagsstofnunar.
Við gildistöku eldri skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, var talið nauðsynlegt að hafa möguleika á slíkri málsmeðferð enda voru þá nær engin sveitarfélög með aðalskipulag sem náði til alls lands sveitarfélagsins. Öll sveitarfélög í landinu áttu að hafa gengið frá slíku aðalskipulagi innan tíu ára frá gildistöku laganna, þ.e. fyrir 1. janúar 2008. Þótt það markmið hafi ekki náðst að fullu eru eingöngu örfá sveitarfélög nú án aðalskipulags. Fyrir þau verður áfram að gera ráð fyrir að unnt sé að leita meðmæla Skipulagsstofnunar með einstökum leyfisveitingum eða heimild til að auglýsa tillögur að deiliskipulagi án þess að aðalskipulag liggi fyrir. Í þeim sveitarfélögum þar sem aðalskipulag liggur fyrir er almenna reglan sú að byggingarleyfi er unnt að veita á grundvelli deiliskipulags eða grenndarkynningar og framkvæmdaleyfi á grundvelli deiliskipulags, grenndarkynningar eða beint á grundvelli aðalskipulags án frekari skipulagsgerðar eða kynningar. Ekki verður séð að ástæða sé lengur til að heimila aðra málsmeðferð til bráðabirgða vegna leyfisveitinga til stakra framkvæmda í þeim sveitarfélögum.
Einnig er í frumvarpinu lagt til að kveðið verði á um tímalengd meðmæla Skipulagsstofnunar. Lagt er til að þau gildi aðeins í eitt ár frá veitingu þeirra en samkvæmt núgildandi lögum er gildistími meðmæla Skipulagsstofnunar ótímabundinn. Talið er eðlilegra að sett séu tímamörk á slík meðmæli til að tryggja að ekki sé hægt að auglýsa deiliskipulag jafnvel mörgum árum eftir að meðmæli Skipulagsstofnunar voru fengin.
Að lokum er í frumvarpinu lögð til breyting á 4. tölulið ákvæðis til bráðabirgða þar sem fjallað er um þingsályktun um landsskipulagsstefnu og svæðisskipulag miðhálendis Íslands. Þingsályktunartillaga um landsskipulagsstefnu var lögð fram á vorþingi 2013 en náði ekki fram að ganga. Unnið er að gerð nýrrar landsskipulagsstefnu sem áætlað er að verði lögð fram á Alþingi árið 2015.
Svæðisskipulag miðhálendisins er enn þá í gildi þar sem landsskipulagsstefna hefur ekki verið samþykkt. Talin er þörf á að geta gert breytingar á svæðisskipulagi miðhálendisins en ekki er í skipulagslögum kveðið með skýrum hætti á um málsmeðferð Skipulagsstofnunar vegna breytinga á svæðisskipulaginu. Þær breytingar sem kunna að verða gerðar á svæðisskipulaginu munu byggja á tillögu viðkomandi sveitarfélags um breytingu á aðalskipulagi og ósk þess um samsvarandi breytingu á svæðisskipulaginu. Ekki er því talin þörf á sérstakri aðkomu sveitarfélaga við málsmeðferð breytinganna.
Gerð er tillaga um að Skipulagsstofnun vinni lýsingu á skipulagsverkefninu og auglýsi breytinguna með sambærilegum hætti og gert er ráð fyrir varðandi svæðisskipulag almennt og aðalskipulag, þ.e. með áberandi hætti og í Lögbirtingablaði. Einnig er lagt til að hægt verði að koma athugasemdum við tillöguna til Skipulagsstofnunar. Að lokinni afgreiðslu Skipulagsstofnunar er lagt til að tillagan verði send ráðherra til staðfestingar sem auglýsir staðfestingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.