skipulagslög.
Virðulegi forseti. Það er rétt að bótaákvæðið hefur verið til umfjöllunar talsvert lengi. Ég sat í umhverfisnefnd þegar skipulagslögin voru til umfjöllunar á þinginu 2010 og þá var að ósk Reykjavíkurborgar talsverð umræða um þetta og menn náðu kannski ekki nákvæmlega saman um með hvaða hætti hægt væri að fara þá leið. Þess vegna var því í nefndarálitinu vísað til ráðuneytisins að óska eftir frekari útskýringum og fara yfir lagaleg rök á bak við þetta. Og ég held að sú vinna sem fram hefur farið sé traust og góð og þess vegna sé þetta mál hingað komið og ég held að það sé nokkuð skýrt.
Varðandi deiliskipulagsáætlanirnar og hvort þær fái þá fullnaðarstaðfestingu innan sveitarfélaganna er meiningin sú eftir því sem ég best veit að deiliskipulag á grundvelli aðalskipulags sem Skipulagsstofnun hefur samþykkt (Forseti hringir.) sé þá fullnaðarafgreiðsla hjá viðkomandi sveitarfélagi.