skipulagslög.
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé án efa málefni sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd hlýtur að taka til umfjöllunar af þessu tilefni kannski fyrst og fremst en líka almennt í vinnu nefndarinnar.
Tilgangurinn, eins og við höfum kannski aðeins farið yfir, er fyrst og fremst að skýra þennan rétt. Eitt af því sem er hluti af því sem þarf að skýra er að menn verði að sýna fram á að þeir hafi orðið fyrir einhverjum skaða umfram aðra. Það er verið að reyna að taka á því með því að hafa þessar reglur skýrari á einhvern hátt.
Hvort þetta svarar að fullu og eilífu þessum vangaveltum, eins og ég sagði í fyrra andsvari við hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur, er ég ekkert viss um en þetta er án efa skref í rétta átt, að okkar mati.