143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

skipulagslög.

512. mál
[17:28]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Mér hefur skilist að þetta frumvarp hafi verið lengi í vinnslu og að byrjað hafi verið á þessari vinnu í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ég vil segja, af því að ég gleymdi að geta þess hér áðan, að mér finnst ánægjulegt þegar ríkisstjórnin heldur áfram með mál sem hafa verið undirbyggð og hendir þeim ekki út um gluggann eins og freistast var til að reyna með náttúruverndarfrumvarpið. — En þetta var nú svona utan dagskrár.

Mig langar aðeins til að koma að ummælum hv. þingmanns um 12. gr. frumvarpsins. Ég var einmitt að velta því fyrir mér, þegar ég var að lesa það, hver aðalatriði þess væru, hvort einhverjir laumufarþegar væru í því. Mér sýnist það vera ekta laumufarþegi sem er settur inn í þetta lagafrumvarp sem snýr fyrst og fremst að bótaskyldu eða bótarétti, hvort heldur við köllum það nú, og þá allt í einu kemur þessi 12. gr. þar sem landeigendur mega sjálfir skipuleggja land sitt. Hverra hagsmunir eru það? Hvaða hagsmunum er verið að lauma þarna inn eða ýta undir í þessu frumvarpi? Hv. þingmaður velti því aðeins fyrir sér, en getur hann kannski verið svolítið skýrari en hann var áðan? (Forseti hringir.) Hvaða hagsmuni hafa menn af því að skipuleggja land sitt sjálfir?