skipulagslög.
Herra forseti. Einhvers staðar er sagt að sá valdi miklu sem upphafinu valdi. Það má kannski segja eins með skipulagsáætlanir að sá sem byrjar vinnu við skipulagsáætlun eða deiliskipulag á tilteknu svæði, hann getur haft býsna mikið um það að segja hvert útlit skipulagsins verður, hvaða heimildir verða til uppbyggingar o.s.frv. Almennt má segja að sá sem á land eða hefur umráðarétt yfir landi og vill skipuleggja á því gerir það væntanlega til að fá út úr því einhvern ábata og hann vill kannski að hann sé sem mestur, þar af leiðandi eru tillögur hans um skipulagið því marki brenndar.
Nú er það svo að samþykkt skipulagsáætlunar er alltaf á hendi sveitarfélags fyrir rest, það verður alltaf í höndum sveitarfélagsins að fallast á skipulagið. Við bara vitum það, og ég þekki það mjög af reynslu í þessum málaflokki, að þegar aðilar koma fram með sínar skipulagsáætlanir, sem eru kannski langt umfram það sem sveitarfélagið getur hugsað sér, þá byrja alltaf einhvers konar samningaviðræður sveitarfélagsins við landeigandann eða lóðarhafann um hvað megi nú og hvað sé skynsamlegt, í stað þess að ef sveitarfélagið bara byrjar þessa vinnu út frá meginmarkmiðum síns aðalskipulags, yfirbragðs byggðar, hagsmuni alls nágrennisins, þá verður skipulagsáætlun kannski allt öðruvísi útlítandi. Síðan verður lóðarhafinn að gera það upp við sig hvort hann vill fara í þá uppbyggingu sem skipulagsáætlunin heimilar.
Ég held að það sé nú aðallega spurningin um þessa mismunandi nálgun á málin og það skiptir máli í mínum huga, og á að vera meginreglan, að sveitarfélagið hafi þetta með höndum. En auðvitað getur það vel verið að það séu í einhverjum tilfellum hagsmunir sveitarfélagsins að lóðarhafi sjái um skipulagningu (Forseti hringir.) á sinn kostnað, en ég svona velti fyrir mér hvort hér sé verið að gera það (Forseti hringir.) jafnvel enn auðveldara heldur en … (Forseti hringir.)