143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

skipulagslög.

512. mál
[18:03]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum spurningarnar og vangavelturnar.

Varðandi árs frestinn, að tilkynna þurfi endurskoðun á aðalskipulagi innan einhvers tiltekins tíma, þá er væntanlega einhver góð skýring á því. Ég tel að þarna sé verið að auðvelda Skipulagsstofnun verkið, að fá yfirsýn yfir þau verk sem hún gæti átt fram undan og hægt sé að kortleggja það hvaða sveitarfélög á landinu ætla að fara í aðalskipulag á næsta kjörtímabili. Það er það helsta sem mér dettur í hug.

Ég vil taka undir með þingmanninum um mikilvægi þess að hafa einhvern aga og „system í galskapnum“ í skipulagsmálum. Það er gríðarlega mikilvægt. Þegar við erum að byggja hús ætlumst við væntanlega til þess að þau standi í einhvern tíma. Nú snýst ekki skipulag eingöngu um húsbyggingar, það snýst líka um aðrar framkvæmdir, en að öllu jöfnu gerum við ráð fyrir því að það sem við leggjum af stað með í skipulaginu muni standa um langa tíð. Þess vegna er svo mikilvægt að ekki sé hægt að gera meiri háttar breytingar á skipulagi eins og hendi sé veifað heldur sé það svolítið erfitt. Þetta á kannski sérstaklega við í hverfum sem eru tiltölulega gróin, þar geta hreinlega tilfinningar og ásýnd skipt svo gríðarlega miklu máli fyrir íbúana.

Varðandi það sem þingmaðurinn nefndi um framkvæmdaleyfi og dagsektir á það við um leigulóðir, en það á ekki við á sama hátt um eignarlóðir, (Forseti hringir.) þess vegna getur þar verið ákveðinn vandi á ferðum.