skipulagslög.
Herra forseti. Það eru orð að sönnu hjá hv. þm. Margréti Gauju Magnúsdóttur að hv. umhverfis- og samgöngunefnd hefur ærið verkefni að velta þessu fyrir sér. Auðvitað þarf það ekki að taka mjög langan tíma, nefndin er væntanlega ágætlega nestuð héðan úr þingsal með ítarlegar umræður og vangaveltur um þau atriði sem út af standa. Það er því líklegt að nefndin geti unnið þetta hratt og vel.
Mig langar að nefna frekar hvernig sveitarfélög geta komist í vanda út af til að mynda réttindum lóðarhafa og þetta eru raunveruleg dæmi, herra forseti. Það hefur gerst í sveitarfélagi sunnan Reykjavíkur að eigendur húsa hafa gert þetta í raun og veru, rifið niður hundruð ef ekki þúsundir fermetra af fasteignum í iðnaðar- eða atvinnuhúsnæði til að losna við að greiða af þeim fasteignagjöld. Þeir bíða svo bara rólegir vegna þess að lóðin fer ekki neitt, hún er á sínum stað, en sáralítil fasteignagjöld þarf að borga af óbyggðri lóð. Þetta getur skipt sveitarfélög gríðarlega miklu máli. Tekjutapið sem sveitarfélagið verður fyrir af hverri slíkri lóð í iðnaðarhverfi getur hlaupið á fleiri milljónum.
Þess vegna er svo mikilvægt að við skoðum þetta gaumgæfilega (Forseti hringir.) og bótarétturinn geti mögulega gengið í báðar áttir. Það séu ekki bara réttindi sem fylgja deiliskipulaginu heldur líka skyldur.