skipulagslög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það er gott að fá varaþingmenn hér inn á þing sem hafa innsýn í skipulagsmálin eins og hv. þingmaður hefur. Í ræðunni rakti þingmaðurinn nokkuð skipulag þvert á skipulagssvæði, mikilvægi svæðisskipulags og sameiginlegs skipulags þvert á umdæmi. Við höfum skelfileg dæmi héðan af höfuðborgarsvæðinu í aðdraganda hruns sem kannski er hægt að kalla skipulagslega samkeppni — ég held að ég hafi aldrei heyrt það orð sagt, en þá var hvert og eitt sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í sjálfu sér í seldri stöðu gagnvart áhugasömum byggingaraðilum vegna þess að sum sveitarfélög voru að þróa og byggja upp ný og ný hverfi og hin sveitarfélögin töldu sig þurfa að bjóða líka upp á ný og ný hverfi. Gríðarleg spenna myndaðist að þessu leyti. Ef allar skipulagsáætlanir voru samanteknar á höfuðborgarsvæðinu átti íbúum þess að fjölga svo gríðarlega að horfði til auðnar annars staðar í landinu á örfáum árum. Síðan voru lögin um húsnæðismál algerlega ónothæf hvað varðaði gerð húsnæðisáætlana. Í gömlu húsnæðislögunum voru ákvæði um að sveitarfélög gerðu húsnæðisáætlanir. Það hafði eiginlega verið algerlega óvirkt áratugum saman. Niðurstaða okkar af greiningu á þessu á síðasta kjörtímabili var sú að gera þyrfti alvöruhúsnæðisáætlanir, þvinga sveitarfélögin til þess, og einhvern veginn að stemma skipulagsáformin af miðað við áætlanagerðina. Kannski hefur hv. þingmaður velt þessum þáttum fyrir sér og væri gaman að heyra sjónarmið hans í því efni.