143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

511. mál
[20:07]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Ég vil aðeins ræða athugasemdir um laxastofnana. Síðustu orð hæstv. ráðherra komu mér nokkuð á óvart þegar hann lagði til að málinu yrði vísað til hv. atvinnuveganefndar þar sem rammaáætlun heyrir undir hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra. Ég hlýt að gera athugasemd við það. Er ekki eðlilegt að rammaáætlun fari til meðhöndlunar hv. umhverfis- og samgöngunefndar? Ég hefði talið það nær lagi.

Hæstv. ráðherra vitnaði til greinargerðar í ræðu sinni um athugasemdir sem hefðu borist. Ég er ekki búin að fara yfir allar athugasemdirnar en hef þó komið auga á að verndarsjóður villtra laxastofna hefur gert mjög ítarlegar athugasemdir við þessa ákvörðun sem hann telur að ekki liggi fyrir nægjanleg gögn um, þ.e. að sá faghópur sem var skipaður haustið 2013 hafi fengið leiðandi fyrirmæli en tíminn sé fyrst og fremst allt of naumur til að kynna sér búsvæði laxastofnsins, þarna sé mikilvægt svæði fyrir laxfiskinn í Þjórsá. Hann sendir talsvert ítarlega umsögn.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra sérstaklega út í þetta af því að þetta voru kannski þær athugasemdir sem höfðu hvað mest áhrif þegar ákveðið var á sínum tíma að færa þessa þrjá virkjunarkosti yfir í biðflokk. Rannsóknir á laxastofnum voru ekki taldar nægjanlegar. Hefur hæstv. ráðherra kynnt sér það mál og telur hann þessar athugasemdir ekki eiga við rök að styðjast?