143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

511. mál
[22:22]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur áðan og tel einsýnt að það komi greining frá skrifstofu þingsins á fordæmum fyrir því að breytingartillaga við þegar samþykkt þingmál fari í aðra þingnefnd en þá sem með málið fór í upphafi.

Eitt er að ríkisstjórnin kjósi með þessum hætti að reyna einhvern veginn að ala á ófriði og tortryggni í umhverfismálum. Við vitum svo sem að það eru hennar ær og kýr. En það liggur fyrir að á síðasta þingi var málinu vísað til umhverfisnefndar og þingsköp hafa ekki breyst síðan. Það voru vissulega deildar meiningar um það en sú varð niðurstaðan. Telur þá þingforseti efnislega ranga niðurstöðu hafa fengist á síðasta þingi á túlkun þingskapa? (Forseti hringir.) Ég vil þá fá að heyra það formlega frá þingforseta. Ég hlýt líka að spyrja: Ætlar hann að fara yfir aðrar ákvarðanir forvera sinna á forsetastóli?