143. löggjafarþing — 95. fundur,  10. apr. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

511. mál
[23:51]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hafði metið það svo þegar umræðan var komin nokkuð áleiðis í kvöld að henni lyki innan tíðar en síðan hafa margir bæst á mælendaskrána. Forseti hefur ekki tekið ákvörðun á þessari stundu nákvæmlega um hversu lengi hann hyggst halda fundinum áfram en kýs þó að gera það enn um sinn, en er ekki með þessum orðum með nokkrum hætti að snúa út úr og vill eingöngu að fá tækifæri til að íhuga örlítið framhald fundarins.