143. löggjafarþing — 97. fundur,  28. apr. 2014.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:04]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Með bréfi, dags. 15. apríl sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi þrjár skýrslur frá Ríkisendurskoðun: skýrslu um Lækningaminjasafn Íslands, skýrslu um átaksverkefni um tannlækningar fyrir börn tekjulágra forráðamanna og skýrslu um Sjúkrahúsið á Akureyri.