143. löggjafarþing — 97. fundur,  28. apr. 2014.

ríkisfjármál og skuldaleiðrétting.

[15:22]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Gleðilegt sumar. Mig langar að ræða ríkisfjármál og í raun forgangsröðun í útgjöldum í ríkisfjármálum. Ég held að þessi umræða um veiðigjald sýni að margir óvissuþættir eru í rekstri ríkissjóðs. Einn þeirra er afkoma í sjávarútvegi. Það er líka gríðarleg uppsöfnuð viðhalds- og uppbyggingarþörf í rekstri hins opinbera eftir langvarandi niðurskurð. Mikil þörf er á innspýtingu í menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu, vegakerfinu og varðandi ferðamannastaði svo dæmi séu tekin. Það hefur verið skorið við nögl í fjárframlögum til allra innviða samfélagsins um nokkurra ára skeið. Ríkissjóður er ofurskuldsettur, hann er einn af skuldsettustu ríkissjóðum Evrópu. Vextir af lánum eru breyta sem getur haft gríðarlega mikla þýðingu fyrir útgjöld úr ríkissjóði.

Stórir tekjuliðir geta minnkað eða horfið jafnvel í einni svipan eins og til dæmis nýsettur bankaskattur. Ef vel gengur að afnema höft á fjármagnsflutninga þá felur það væntanlega í sér að búin, sem eru stórir greiðendur þessa bankaskatts, verða gerð upp og þar með er sá tekjupóstur horfinn.

Ég vil ræða í þessu samhengi málið sem við erum að fara að ræða hér á þessum dögum, væntanlega mjög mikið, sem er niðurfelling skulda heimila sem á að kosta 20 milljarða á ári næstu fjögur árin hið minnsta. Mig langar að spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort það sé réttur skilningur hjá mér að í þessum óvissu- og ólgusjó, þar sem stórir tekjuliðir geta horfið og þar sem útgjöld ríkisins geta aukist, muni þessi útgjaldaliður, 20 milljarðar á ári næstu fjögur ár hið minnsta, alltaf njóta forgangs.