143. löggjafarþing — 98. fundur,  28. apr. 2014.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.

565. mál
[18:10]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra er að sjálfsögðu ekki með neina beina fyrirspurn til mín nema kannski þessar vangaveltur um stjórnarskrána. Ég hef ekki fullyrt neitt um það. Ég tel að það sé þá bara eitthvað sem þarf að skoða betur, hvort þær séu mikilvægar þessar upplýsingar, sem komu fram hjá hæstv. ráðherra, að ráðherraráð Evrópusambandsins hafi samþykkt þessa reglugerð 14. apríl og hún yrði birt 30. apríl. Það þýðir væntanlega að eins og hún birtist hér, sem fylgiskjal með þessari þingsályktunartillögu, þá er hún í endanlegu formi eins og hún var samþykkt af ráðherraráðinu 14. apríl.

Getur hún tekið breytingum? Er einhver fræðilegur möguleiki á því? Það kann vel að vera en 30. apríl er eftir tvo daga og þá verður hún væntanlega birt Evrópusambandsmegin. Við gætum hugsanlega verið að afgreiða hana hér á þeim sama degi ef að líkum lætur, ég veit ekki hvaða áform hv. formaður utanríkismálanefndar hefur í því efni. Hann hefur boðað fund í nefndinni á eftir en hvort hún kemur hingað strax aftur á morgun eða á miðvikudag, og gæti þá verið afgreidd sama dag og hjá Evrópusambandinu, þá held ég að við gætum vel við unað í því efni. Þetta þurfum við bara að skoða á vettvangi nefndarinnar og ég geri ráð fyrir því að kallaðir verði til þeir sérfræðingar sem við eigum í þessu efni, stjórnskipunarrétti meðal annars, fyrir utan þá sem fjalla efnislega um innihald þessarar tilskipunar.

Eins og ég sagði áðan þá tel ég efnislega að hún sé þýðingarmikil, þessi breyting. Hún varðar hagsmuni, eins og þar kemur fram og hefur verið lýst, og kannski getum við fengið enn nánari upplýsingar um það hverjir þeir eru, af hálfu fulltrúa flugrekenda þegar þeir koma til fundar við utanríkismálanefnd. Ég held sem sagt að það sé ekkert annað en taka þessa þingsályktunartillögu til umfjöllunar í nefndinni og reyna síðan að afgreiða hana eins fljótt og kostur er. Við höfum væntanlega tvo daga til þess.