143. löggjafarþing — 99. fundur,  29. apr. 2014.

störf þingsins.

[13:44]
Horfa

Elín Hirst (S):

Virðulegi forseti. Ég átti þess kost að kynna mér starfsemi Vinaseturs í Reykjanesbæ fyrir skömmu. Vinasetrið er heimili og vettvangur fyrir börn sem þurfa á stuðningsfjölskyldum að halda að mati félagsþjónustu og/eða foreldra og forráðamanna og er með rekstrarleyfi frá Barnaverndarstofu.

Heimilinu er ætlað að vera athvarf og hvíldarstaður um helgar þar sem hvert barn getur notið sín og fengið þá nánd og aðhlynningu sem nauðsynleg er þroska þess og aðstæðum.

Tilefni fundar míns með forráðamönnum Vinaseturs var fréttir sem voru hafðar eftir þeim um að til þeirra kæmu börn sem væru svöng, ættu ekki föt eða skó til skiptanna, gætu ekki stundað tómstundastarf eða íþróttir vegna fátæktar.

Þessar fréttir þykja mér mjög alvarlegar. Kveikjan að þessum fréttaflutningi er nýútkomin skýrsla Barnaheilla þar sem fram kemur, með leyfi forseta, að barnafátækt sé „veruleiki í öllum ríkjum Evrópu, einnig í hinum norrænu velferðarríkjum“, þar á meðal hér á landi.

Ég veit ekki hversu stór hópur barna þetta er hér á landi en eitt svangt barn á Íslandi árið 2014, í landi þar sem við leggjum áherslu á að hjálpa þeim sem minnst mega sín, er einu barni of mikið. Ég, eins og aðrir á Alþingi, þvert á allar flokkslínur, hef því ríkan vilja til að koma á umbótum í þessum efnum og skora á hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn úr öllum flokkum að taka saman höndum.

Ég skora líka á almenna borgara að gera allt sem í þeirra valdi stendur og styðja að á næstu vikum, mánuðum og missirum verði brugðist við, ekki aðeins til skemmri tíma heldur til framtíðar.